Sótt er um allt skiptinám á netinu. Umsóknareyðublöðin eru prentuð út, undirrituð af umsækjanda og afhent Alþjóðaskrifstofu. Einnig þarf deildin að gefa samþykki sitt fyrir skiptináminu, það er gert með undirritun á námsáætluninni í Erasmus og Nordplus.
Umsóknir um skiptinám í Evrópu - Umsóknir um skiptinám utan Evrópu

Umsóknir um skiptinám í Evrópu
Umsóknarfrestur 1. mars 2012 fyrir skólaárið 2012-2013
Þegar búið er að velja skólann þá fylla nemendur út rafræna umsókn sem þarf að:
- skila inn rafrænt
- prenta út og skrifa undir
- afhenda á Alþjóðaskrifstofu ásamt fylgigögnum fyrir umsóknarfrest
Vinsamlegast athugið að það eru mismunandi umsóknir fyrir Erasmus og Nordplus. Fyllið einungis út eina rafræna umsókn, ekki bæði Erasmus og Nordplus. Þegar þið fyllið út rafrænu umsóknina eruð þið sjálfkrafa að sækja um styrk.
- Erasmus umsókn fyrir skólaárið 2012-13
- Nordplus umsókn fyrir skólaárið 2012-13
- Erasmus umsókn fyrir skólaárið 2011-12 (umsóknarfrestur liðinn og umsóknir settar á biðlista)
- Nordplus umsókn fyrir skólaárið 2011-12 (umsóknarfrestur liðinn og umsóknir settar á biðlista)
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja undirritaðri umsókn:
- Áætlun um dvölina. Umsækjendur um hefðbundið skiptinám fylla út Námsáætlun (.doc, 68 kb), en umsækjendur um starfsnám fylla út Starfsnámsáætlun (.doc, 42 kb). Prentið hana út og fáið undirskrift forsvarsmanns deildar/fags eða alþjóðafulltrúa í deild. Í starfsnámi þarf einnig að fá undirskrift úr gestastofnun.
- Kynningarbréf (Statement of purpose / Motivation letter). Einnar blaðsíðu ritgerð á ensku um umsækjanda og tilgang með skiptinámi
- Staðfest yfirlit yfir einkunnir á ensku - fæst á Þjónustuborði á Háskólatorgi.
Vinsamlegast athugið! Námsætlun er skjal þar sem þið setjið inn á þau námskeið sem að þið hyggist taka við gestaskólann meðan á skiptinámsdvöl ykkar stendur. Deildin ykkar þarf að skrifa undir þetta skjal og með því að gera það er hún að samþykkja að meta viðkomandi námskeið þegar þið komið til baka út skiptináminu. Það er mjög mikilvægt að gera þetta tímanlega þar sem oft getur tekið nokkra daga að fá skjalið til baka. Gott er að reikna með að fara með þetta í deildina í síðasta lagi tveimur vikum fyrir umsóknarfrestinn.
Umsóknir í skiptinám utan Evrópu
Umsóknarfrestur er 16. janúar, klukkan 16:00
- Umsókn fyrir skólaárið 2012-2013 (smellt er á „Preview“, síðan „Submit“ ef hún er í lagi)
Það þarf að velja námskeið fyrir alla þá skóla sem sótt er um.
Þessari umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn:
- Staðfest yfirlit yfir einkunnir á ensku - fæst á Þjónustuborði á Háskólatorgi
- Kynningarbréf (statement of purpose). Einnar blaðsíðu ritgerð á ensku um umsækjanda og tilgang með skiptinámi. Það má senda eitt kynningarbréf fyrir hvern valinn skóla eða eitt almennt.
- Gögn um tungumálakunnáttu ef beðið er um þau (t.d. niðurstöður úr TOEFL prófi). Má vera útprent af ETS síðunni þinni.
Kallað verður eftir frekari gögnum síðar í umsóknarferlinu.
Athugið að til þess að umsókn sé gild þarf hún að hafa borist Alþjóðaskrifstofu, útprentuð og undirrituð af stúdent og deild, fyrir umsóknarfrest.
Niðurstöður tungumálaprófa þurfa að liggja fyrir áður en umsóknarfresti lýkur.
Athugið að um skiptinám í University of Minnesota og University of Iowa gildir sérstakt umsóknarferli.

