Háskóli Íslands er einn stærsti vinnustaður landsins. Þar starfa auk rúmlega fjórtán þúsund nemenda, tæplega þrettán hundruð fastráðnir starfsmenn og yfir tvö þúsund stundakennarar og lausráðnir starfsmenn. Megin hlutverk Háskólans er að vera vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun. Til þess að svo megi vera þarf fjölmarga ólíka starfsmenn.
Háskóli Íslands er lifandi samfélag þar sem saman koma einstaklingar með ólíkan bakgrunn en allir vinna þó að sama marki að gera Háskóla Íslands að enn öflugri menntastofnun en hún er í dag.
Markmið Háskóla Íslands er að vera í fremstu röð háskóla og að nota alþjóðlega viðurkennda mælikvarða við allt gæðamat á starfi skólans. Gerðar eru kröfur til kennara, stjórnenda og annars starfsfólks til að ná þessu markmiði.
Meðal þeirra almennu væntinga sem Háskóli Íslands hefur til allra starfsmanna sinna eru að þeir sýni:
- kostgæfni í starfi,
- ábyrgð, sjálfstæði og frumkvæði,
- vilja og hæfni til samstarfs,
- sveigjanleika og aðlögunarhæfni.
Íþróttahús Háskóla Íslands er opið öllum starfsmönnum og nemendum gegn vægu gjaldi. Þar er fullkominn tækjasalur auk hópatíma af ýmsu tagi.
Í könnunum sem gerðar hafa verið um starfsumhverfi Háskóla Íslands kemur í ljós að starfsánægja er mikil, starfsandi góður og starfsfólk telur sig vera í góðri aðstöðu til að þróast í starfi.
Langar þig að vinna hjá Háskóla Íslands
Hafir þú áhuga á að starfa í lifandi samfélagi með skemmtilegu fólki er þér velkomið að senda inn almenna umsókn eða sækja um laus störf.
Leiðir til að senda starfsumsókn:
- Sækja um á vefnum. Þú getur með einföldum hætti sótt um starf á vefnum. Almenn starfsumsókn.
- Umsóknir í tölvupósti. Sendist til Starfsmannasviðs Háskóla Íslands á netfangið: starfsumsoknir@hi.is
- Koma á staðinn. Starfsmannasvið Háskóla Íslands er staðsett í aðalbyggingu HÍ við Sæmundargötu 2 og er umsækjendum velkomið að koma með umsókn sína.
- Senda í pósti
Starfsmannasvið Háskóla Íslands
- starfsumsókn
Sæmundargötu 2
101 Reykjavík

