Nútímaleg og vel skipulögð menntastofnun

Antonios Alexandridis
Antonios Alexandridis

Nútímaleg og vel skipulögð menntastofnun, en  margt mætti vera á annan veg, segir Antonios Alexandridis nemandi í mannfræði við Háskóla Íslands. Antonios kem frá Heraklion í Grikklandi en hefur lokið tveimur árum í mannfræði hér á landi.

Ég er ánægður með þá ákvörðun mína að fara í nám í Háskóla Íslands sem er einstaklega nútímaleg og vel skipulögð menntastofnun þar sem boðið er upp á marga möguleika. Kennararnir eru hjálpsamir og gagnrýnir, menntunarlegur bakgrunnur þeirra er afar misjafn og það veitir náminu aukna vídd. Einhver gæti dregið þá ályktun að skortur á tungumálakunnáttu væri mikið vandamál í mínu námi. En svo er ekki, ég hef fengið mikla hjálp frá flestum kennurunum til þess að tungumálið hindri mig sem allra minnst.

Þrátt fyrir að kennararnir séu í sérflokki, þá eru ýmis atriði sem vekja furðu erlends stúdents. Mér sýnist  Háskóli Íslands vera lítið annað en spegilmynd af því neyslusamfélagi sem hann tilheyrir og það rennir stoðum undir þá skoðun mín að Háskóli Íslands sé á sumum sviðum fremur rekinn sem einkafyrirtæki og síður sem þekkingarstofnun í þágu almennings.
Mikilvægasta verkefni  HÍ á að vera að auka almennan skilning og gagnrýni stúdenta, að vekja hjá þeim námsþorsta alla ævi og gera þá að einstaklingum sem búa ekki eingöngu yfir þekkingu heldur taka virkan þátt í að búa til samfélag jöfnuðar og velmegunar.
 

deila á facebook