Rannsóknir



Uppbygging náms og fyrirkomulag

Þverfræðilegt meistaranám í öldrunarfræðum (NordMaG) er 120 ECTS eininga nám.  Námið skiptist í fræðileg námskeið (20e) og aðferðafræðinámskeið (10e), valnámskeið (30-50e) og MA-ritgerð (40-60e).
Nemendur þurfa að taka a.m.k. 30 einingar við annan hvorn samstarfsskólann, háskólann í Lundi eða háskólann í Jyväskylä.

Kennt er í fjarnámi og staðlotum í Reykjavík, Jyväskylä í Finnlandi og Lundi í Svíþjóð.

Kennsla fer fram á ensku.

 

Inntökuskilyrði

Námið er opið þeim sem lokið hafa BA- eða BS-gráðu á heilbrigðis- eða félagsvísindasviði. Að jafnaði er krafist fyrstu einkunnar.

Tekið er við allt að 15 nemendum á ári. Hver skóli getur tekið á móti fimm nemendum.

Umsóknarfrestur til að hefja nám að hausti 2010 er til 15. apríl nk.  Rafræn umsóknareyðublöð eru aðgengileg á umsóknartíma.


deila á facebook