Um deildina




Í Uppeldis- og menntunarfræðideild er boðið upp á fjölbreytt grunnnám í uppeldis- og menntunarfræðum, svo og nýtt alþjóðlegt nám í menntunarfræðum. Einnig er boðið upp á fjölbreytt starfstengt nám á meistarastigi fyrir starfandi kennara og stjórnendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum, svo og öflugt rannsóknartengt nám á meistara- og doktorsstigi.

Nemendur læra um nám og þroska, uppeldi og menntun frá sjónarhóli menntunarfræði, sálfræði, félagsfræði, heimspeki og siðfræði. Jafnframt er lögð rík áhersla á tengsl við væntanlegan starfsvettvang.

Uppeldis- og menntunarfræðideild er öflug og vaxandi deild þar sem rúmlega 400 nemendur stunda nám. Við deildina starfa helstu sérfræðingar á sviði menntavísinda á Íslandi.

deila á facebook