Rannsóknir
Helstu rannsóknarsvið kennara deildarinnar eru í heimspeki, fjölmenningarfræðum, menntastjórnun, nýsköpun og mati á skólastarfi, kynja- og jafnréttisfræðum, sálfræði í uppeldis- og menntavísindum, barna- og æskulýðsfræðum, sérkennslufræðum og skóla án aðgreiningar og á sviði þroska, máls og læsis. Taka þeir m.a. þátt í rannsóknum eftirtalinna rannsóknarstofa: Rannsóknarstofu í barna- og æskulýðsfræðum (BÆR), Rannsóknarstofu í fjölmenningarfræðum, Rannsóknarstofu um skóla án aðgreiningar, Rannsóknarstofu um þroska, mál og læsi barna og unglinga, Rannsóknarstofu um þróun skólastarfs og Rannsóknarstofu í menntastjórnun, nýsköpun og mati á skólastarfi.
Dæmi um samstarfsverkefni sem kennarar deildarinnar eru þátttakendur í eru: Starfshættir í grunnskólum, Fjölbreyttir kennarahópar og fjölbreyttir nemendahópar, Sjálfsmynd og lífsgildi ungmenna í fjölmenningarsamfélagi, Þroski leik- og grunnskólabarna: Sjálfsstjórn, málþroski og læsi á aldrinum 4ra til 8 ára, Mál í notkun: Tal- og ritmál barna, unglinga og fullorðinna, þróun á íslensku skimunarprófi vegna lestrarörðugleika.
Menntavísindastofnun
Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem starfrækt er við Menntavísindasvið. Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir og rannsóknarumhverfi innan Menntavísindasviðs. Stofnuninni er ætlað að styðja rannsóknarstofur og einstaka rannsakendur með því að veita aðstoð við gerð umsókna í rannsóknasjóði; bæði innlenda og erlenda samkeppnissjóði auk annarra fjármögnunarleiða. Einnig mun hún veita ráðgjöf og aðstoð við birtingu á niðurstöðum rannsókna, aðstoða við skipulag rannsókna og styðja við þróunarverkefni sem unnin eru á sviðinu.
Undir Menntavísindastofnun heyra sautján rannsóknarstofur Menntavísindasviðs
Reglur um Menntavísindastofnun tóku gildi 1. janúar 2010, sjá á slóðinni:
http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_1023_2009.
Stefna Menntavísindasviðs í rannsóknum 2008-2013 var samþykkt á fundi háskólaráðs Kennaraháskóla Íslands 24. júní 2008. Henni fylgir aðgerðaáætlun sem fylgt verður eftir með starfi Rannsóknarráðs. Það kemur í stað vísindaráðs sem hafði áður ábyrgð á rannsóknum við Kennaraháskóla Íslands.
Rannsóknarráð hefur með höndum þróun rannsókna á sviðinu, framkvæmd aðgerðaáætlunar sem fylgir stefnunni og tengsl við rannsóknartengt framhaldsnám. Í nefndinni sitja fulltrúar allra deilda sviðsins, umsjónarmaður með doktorsnámi og framkvæmdastjóri rannsókna sem er formaður ráðsins.
Rannsóknir eru unnar af akademískum starfsmönnum, doktorsnemum, rannsóknarhópum og rannsóknarstofum.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd


