Uppeldis- og menntunarfræði



Í uppeldis- og menntunarfræði er fengist við spurningar sem tengjast þroska og uppeldi barna og unglinga, samskiptum fólks, sjálfsmyndum, fjölskyldum, skólum, kynferði, menningarlegum margbreytileika, menntun og starfsframa, og  þróun skólakerfa.  

Nám

Uppeldis- og menntunarfræði er þriggja ára fræðilegt og starfstengt 180 eininga grunnnám til BA-gráðu. Námið felur í sér fjölbreytta grunnmenntun sem undirbýr nemendur til starfa á fjölmörgum sviðum uppeldis-, félags- og tómstundamála og leggur einnig grunn að fræði- og rannsóknarstörfum á þessum sviðum. Leitað er svara við áhugaverðum spurningum s.s. hvernig þróast sjálfsmyndir unglinga? Hvers vegna lenda sumir unglingar í vanda? Hvers vegna eru sumir skólar góðir? Hvaðan koma fordómar? Hver eru áhrif kynferðis á menntun og starfsframa? Hvað ræður starfsvali ungs fólks?

Við deildina er í boði nám sem er ýmist í staðnámi eða fjarnámi. Í kennsluskrá kemur fram við hvert námskeið um sig, hvort um er að ræða staðnám, fjarnám eða hvort tveggja.

Uppeldis- og menntunarfræði er kennd til BA-prófs (sem aðalgrein og aukagrein). Í framhaldi af BA-námi í uppeldis- og menntunarfræði geta nemendur haldið áfram á sömu braut og tekið nám á meistarastigi á Menntavísindasviði, t.d. í uppeldis- og menntunarfræði til MA-gráðu (fjórar námsbrautir með fjölmargar námsleiðir) eða til kennsluréttinda. En einnig er hægt að fara í meistaranám á Félagsvísindasviði í greinum eins og náms- og starfsráðgjöf, blaða- og fréttamennsku, opinberri stjórnsýslu, fötlunarfræði, kynjafræði og alþjóðasamskiptum. BA-nám tekur að jafnaði 3 þrjú ár og MA-nám að jafnaði tvö ár.

Miðað er við að þeir sem teknir eru inn í meistaranám hafi lokið BA-prófi með fyrstu einkunn.

Markmið

Markmið BA-náms í uppeldis- og menntunarfræði er að nemendur hafi öðlast góðan skilning á þeim fræðum sem fást við uppeldi og menntun.

Kennsla

Uppeldis- og menntunarfræði er kennd ýmist í staðnámi með fyrirlestrum og umræðutímum í hverri viku eða í fjarnámi með staðbundum lotum. (Upplýsingar um kennslufyrirkomulag eru tilgreindar í hverju námskeiði fyrir sig). Heimavinna og ritgerðasmíð er veigamikill þáttur í náminu.

Atvinnumöguleikar

Nemendur sem lokið hafa BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði hafa fengist við afar fjölbreytt störf. Margir fara að vinna í félagsmiðstöðvum, að íþrótta- og tómstundastarfi, að forvörnum, með fötluðum, í leikskólum, í grunnskólum, með nýbúum og öðrum skyldum störfum. Auk ýmissa stjórnunarstarfa á sviði uppeldis-, félags- og fræðslumála.

Húsnæði

Kennsla fer að mestu leyti fram í Stakkahlíð.

Félagslíf

Nemendafélag uppeldis- og menntunarfræðinema heitir Padeia. Formaður félagsins er Benedikta Björg Valtýsdóttir (bbv1@hi.is). Félagið kemur að útgáfu blaðsins PADEIA og gætir einnig hagsmuna félagsmanna og vísar þeim á leiðir sem hægt er að fara ef eitthvað bjátar á í náminu. Formaður félagsins situr einnig námsbrautarfundi og deildarráðsfundi með kennurum skólans. Félagiði stendur einnig fyrir vísindaferðum, heldur bjórkvöld, PubQuiz-kvöld, skipuleggur árshátíð ár hvert, heldur próflokadjamm o.fl.

Hafa samband

Deildarstjóri Uppeldis- og menntunarfræðideildar er Ásdís Hrefna Haraldsdóttir asdish@hi.is / 525-5982, skrifstofa á 2. hæð í Enni.
Umsjónarmaður námsleiðarinnar er Sigurlína Davíðsdóttir linadav@hi.is

Kennsluskrifstofa veitir einnig upplýsingar menntavisindasvid@hi.is / 525-5950
1. hæð í Enni.

Kynningarbæklingur

Nánari upplýsingar er að finna í kennsluskrá

deila á facebook