Menntunarfræði
Með meistaranámi á námsbrautinni Menntunarfræði gefst nemendum kostur á að rannsaka hlutverk og möguleika menntunar, eðli hennar og inntak, og þá möguleika sem hún opnar og þær hindranir sem standa í vegi fyrir því að einstaklingar og hópar fái notið menntunar. Viðfangsefnin eru margvísleg og tengjast ólíkum greinum s.s. félagsfræði, sálfræði og heimspeki. Forsendur lýðræðis, velfarnaðar og réttlætis búa í menntun þjóðarinnar.
Nám
Námsbrautin samanstendur af fjórum sérsviðum þar sem ljúka má námi ýmist með MA- eða M.Ed.-prófi: Uppeldis- og menntunarfræði, Lífsleikni, sjálfsmyndir og farsæld, Lýðræði, jafnrétti og fjölmenning og Alþjóðlegt nám í menntunarfræði. Einnig er hægt að ljúka diplómanámi á þessum námsleiðum (60e).
Nemendur geta skipulagt nám sitt á hverri námsleið sem fullt nám til tveggja ára eða sem hlutanám sem dreifist á fleiri ár. Upplýsingar um kennslufyrirkomulag eru tilgreindar fyrir hvert námskeið fyrir sig. Meginmunur á MA-prófi og M.Ed.-prófi er sá, að MA-próf gerir ráð fyrir meiri rannsóknarvinnu og stærra lokaverkefni (rannsóknarritgerð) en M.Ed.-próf, sem aftur gerir ráð fyrir meiri tengingu við vettvang.
Nemendur sem vilja hefja meistaranám í menntunarfræði verða að hafa lokið BA- eða B.Ed.-gráðu eða fullgildu starfsmenntanámi á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis eða umönnunar. Gilt er talið nám frá Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og öðrum sambærilegum menntastofnunum. Að jafnaði er gerð krafa um fyrstu einkunn (7,25).
Námsleiðir
• Uppeldis- og menntunarfræði MA, M.Ed.
• Lífsleikni, sjálfsmyndir og farsæld MA, M.Ed.
• Lýðræði, jafnrétti og fjölmenning MA, M.Ed.
• Alþjóðlegt nám í menntunarfræði MA (kennt á ensku)
Markmið
Meginmarkmið náms á námsbrautinni Menntunarfræði er að gefa nemendum kost á að dýpka skilning sinn á ýmsum sviðum menntunarfræða s.s. lýðræði, fjölmenningu, jafnrétti, heimspeki og félagsfræði.
Kennsla
Nám á námsbrautinni Menntunarfræði er kennt ýmist í staðnámi með fyrirlestrum og umræðutímum í hverri viku eða í fjarnámi með staðbundum lotum. (Upplýsingar um kennslufyrirkomulag eru tilgreindar í hverju námskeiði fyrir sig). Heimavinna og ritgerðasmíð er veigamikill þáttur í náminu.
Atvinnumöguleikar
Að loknu námi opnast margar leiðir í atvinnulífinu, m.a. við kennslu, ráðgjöf, stefnumótun og stjórnunarstörf á sviði uppeldis, fræðslu og félagsmála í skólum og öðrum stofnunum samfélagsins.
Húsnæði
Kennsla fer að mestu fram í Stakkahlíð.
Hafa samband
Deildarstjóri Uppeldis- og menntunarfræðideildar er Ásdís Hrefna Haraldsdóttir asdish@hi.is / 525-5982, skrifstofa á 2. hæð í Enni.
Umsjónarmaður námsbrautarinnar skólaárið 2011-2012 er Amalía Björnsdóttir amaliabj@hi.is
Kennsluskrifstofa veitir einnig upplýsingar menntavisindasvid@hi.is / 525-5950
1. hæð í Enni.
Nánari upplýsingar er að finna í kennsluskrá
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd


