Menntastjórnun og matsfræði



Með námi  á námsbrautinni Menntastjórnun og matsfræði öðlast nemendur þekkingu og skilning á stjórnun skóla, mati á skólastarfi og hlutverki leiðtoga við nýsköpun í skóla og atvinnulífi.

Nám

Námsbrautin samanstendur af þremur námsleiðum, Stjórnunarfræði menntastofnana, Matsfræði og Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun. Hægt er að ljúka námi til M.Ed.- og MA- gráðu (120e) í Stjórnunarfræði menntastofnana og Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun og til MA-gráðu í Matsfræði. Þá er hægt að ljúka diplómanámi á þessum námsleiðum (60e).

Nemendur geta skipulagt nám sitt á hverri námsleið sem fullt nám til tveggja ára eða sem hlutanám er dreifist á fleiri ár. Námskeiðin á námsleiðinni Stjórnun menntastofnana eru jafnan skipulögð sem fjarnám með staðbundnum lotum en á leiðunum Matsfræði og Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun ýmist sem staðbundin eða fjarnám með staðbundnum lotum, þ.e. þau námskeið sem tilheyra námsleiðinni. Upplýsingar um kennslufyrirkomulag eru tilgreindar fyrir hvert námskeið fyrir sig.

Aðgangskröfur: BA- eða B.Ed.-gráða eða fullgilt starfsmenntanám á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og umönnunar. Gilt er talið nám frá Kennaraháskóla Íslands, Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og öðrum sambærilegum menntastofnunum. Að jafnaði er gerð krafa um fyrstu einkunn (7,25). Við inntöku í nám á námsleiðina Stjórnunarfræði menntastofnana er auk þess gerð krafa um minnst tveggja ára starfsreynslu eftir bakkalárnám. Kennsla og próf fara að jafnaði fram á íslensku.
 

Námsleiðir

•    Stjórnunarfræði menntastofnana M.Ed., MA
•    Matsfræði MA 
•    Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun M.Ed., MA

Markmið

Meginmarkmið náms á námsbrautinni Menntastjórnun og matsfræði er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á stjórnun skóla, mati á skólastarfi og hlutverki leiðtoga við nýsköpun í skóla og atvinnulífi.

Kennsla

Á námsleiðinni Stjórnun menntastofnana eru námskeið jafnan skipulögð sem fjarnám með staðbundnum lotum en námskeið sem tilheyra námsleiðunum í Matsfræði og Leiðtogar, nýsköpun og stjórnun eru ýmist staðbundin eða í fjarnámi með staðbundnum lotum. Upplýsingar um kennslufyrirkomulag eru tilgreindar fyrir hvert námskeið fyrir sig.

Atvinnumöguleikar

Að loknu námi opnast margar leiðir í atvinnulífinu, m.a. við kennslu, ráðgjöf, stefnumótun og stjórnunarstörf í skólum og öðrum stofnunum samfélagsins.

Húsnæði

Kennsla fer að mestu fram í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.

Hafa samband

Deildarstjóri Uppeldis- og menntunarfræðideildar er Ásdís Hrefna Haraldsdóttir asdish@hi.is / 525-5982, skrifstofa á 2. hæð í Enni.

Umsjónarmaður námsbrautarinnar er Börkur Hansen borkur@hi.is

Kennsluskrifstofa veitir einnig upplýsingar menntavisindasvid@hi.is / 525-5950, 1. hæð í Enni.

Frekari upplýsingar er að finna í kennsluskrá

deila á facebook