Alþjóðlegt nám í menntunarfræði



Athugið að alþjóðlegt nám í menntunarfræði verður ekki í boði á BA-stigi skólaárið 2011-2012 (sjá alþjóðlegt nám í menntunarfræði á framhaldsstigi)

Alþjóðlegt nám í menntunarfræðum tekur mið af þróun í átt til hnattvæðingar og fjölmenningarlegs samfélags og veitir innsýn í líf og starf fólks í ólíkum samfélögum.  Í náminu er m.a. fjallað um fjölmenningarfræði, sjálfbæra þróun, mannréttindi og þróunarfræði. Nemendur verja hluta af námstíma sínum við háskóla erlendis.

Nám

Um er að ræða heildstætt alþjóðlegt nám í menntunarfræðum. Með náminu er brugðist við þróun í átt til hnattvæðingar, aukinna fólksflutninga, þróun fjölmenningarlegs samfélags á Íslandi og Bologna-ferlisins, svo nokkuð sé nefnt. Með náminu opnast ný leið fyrir þá sem hafa áhuga á heildstæðu alþjóðlegra námi í menntunarfræðum og hafa t.d. hug á að starfa í alþjóðlegu skólaumhverfi á Íslandi eða í öðrum löndum. Námið opnar einnig leiðir fyrir stúdenta sem vilja leggja stund á alþjóðlegt nám í menntunarfræðum, með áherslu t.d. á hnattvæðingu og þróun fjölmenningarlegra samfélaga eða áherslu á þróunarfræði og störf í þróunarlöndum.

Markmið

Meginmarkmið námsins er að stúdentar fái innsýn í líf og störf í ólíkum samfélögum, kynnist ólíkri menningu og trúarbrögðum, öðlist víðtæka alþjóðlega eða fjölmenningarlega sýn í menntunarfræði og á störf kennara í leik-, grunnskólum og víðar og hafa tileinkað sér þekkingu á sviði lýðræðis og mannréttinda. Val er um tvær áherslur eða sérsvið í náminu:

1. Tungumálakennsla
2. Menntun í alþjóðlegu samhengi

Kennsla

Öll kennsla fer fram á ensku enda er samsetning námsins og skipulag allt miðað við nemendahóp sem hefur ólíkan bakgrunn. Vettvangsnám er mikilvægur þáttur í náminu og nemendur kynnast margvíslegum starfsvettvangi.

Atvinnumöguleikar

Alþjóðlegt nám í menntunarfræði til BA-prófs er almennt grunnnám á sviði menntunar með áherslu á alþjóðlegt samhengi. Námið hentar ágætlega sem fyrrihlutanám fyrir þá sem stefna á að vera tungumálakennarar en er einnig góður undirbúningur fyrir nemendur sem vilja sérhæfa sig í starfi á alþjóðlegum vettvangi, hvort sem stefnt er að frekari námi eða á vinnumarkaðinn.

Húsnæði

Kennsla fer að mestu leyti fram í húsnæði Menntavísindasviðs við Stakkahlíð.

Hafa samband

Deildarstjóri Uppeldis- og menntunarfræðideildar er Ásdís Hrefna Haraldsdóttir asdish@hi.is / 525-5982, skrifstofa á 2. hæð í Enni.

Umsjónarmaður námsleiðarinnar er Ólafur Páll Jónsson opj@hi.is

Kennsluskrifstofa veitir einnig upplýsingar menntavisindasvid@hi.is / 525-5950 1. hæð í Enni.


Kynningarbæklingur

Nánari upplýsingar er að finna í kennsluskrá

deila á facebook