Um deildina
Í Kennaradeild er boðið upp á fjölbreytt og metnaðarfullt nám fyrir verðandi kennara í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Nemendur læra um nám og þroska, uppeldi og menntun frá sjónarhóli menntunarfræði, sálfræði, félagsfræði, heimspeki og siðfræði. Við deildina starfa helstu sérfræðingar á sviði menntavísinda á Íslandi. Nemendur geta valið um sérhæfingu á fjölmörgum sviðum bæði í grunnnámi og í framhaldsnámi.
Náin tengsl við starfsvettvang
Námið er rannsóknartengt starfsnám sem fer fram í nánu samstarfi við almenna leik-, grunn- og framhaldsskóla. Allir nemendur fá sinn heimaskóla þar sem þeir fá starfsþjálfun og tækifæri til að stunda rannsóknir. Námið undirbýr nemendur undir fjölbreytt dagleg viðfangsefni en ekki síður undir það að verða leiðtogar hver á sínu sviði og til þess að leiða framtíðarþróun skólastarfs í landinu.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Fundaröð Menntavísindasviðs um menntun kennara
Kennaramenntun í deiglu - vefur
Upptökur frá fundunum



