Samstarf
Menntavísindasvið er í samstarfi með fjölmörgum stofnunum og aðilum sem koma að menntamálum og skólastarfi, s.s. menntamálaráðuneyti, sveitarfélögum og stéttarfélögum stétta sem sviðið menntar. Að auki er Menntavísindasvið í samstarfi við önnur svið Háskóla Íslands um nám, kennslu og rannsóknir og við aðra innlenda og erlenda háskóla.
Samstarf Kennaradeildar við leik- og grunnskóla
Kennaraháskóli Íslands, nú Menntavísindasvið, gerði árið 2007 samstarfssamning til þriggja ára við 76 grunn- og leikskóla um menntun kennara. Samningurinn er tvíþættur. Hann felur annars vegar í sér samstarf um framkvæmd vettvangsnáms og hins vegar er hann viljayfirlýsing skólanna til þess að skapa möguleika á samstarfi á breiðari grunni, t.d. um samstarf um þróunarverkefni, rannsóknir eða um kennslu faggreina.
Samstarfsskólarnir taka að sér að vera heimaskólar kennaranema allan námstíma þeirra. Heimaskólar veita ákveðnum fjölda nema aðgang að skólanum til að vinna þar þau verkefni sem tengjast vettvangi. Um getur verið að ræða æfingakennslu, kynnisheimsóknir, þátttöku í undirbúningi og framkvæmd kennslu, athuganir á skólastarfi o.fl.
Stefnt er að því að allir nemendur í Kennaradeild hafi fengið heimaskóla á næstu tveimur árum og fái tækifæri til að læra af þeim bestu.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Fundaröð Menntavísindasviðs um menntun kennara
Kennaramenntun í deiglu - vefur
Upptökur frá fundunum



