Rannsóknir



Kennarar í deildinni leggja áherslu á rannsóknir á sviði náms og kennslu í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum, háskólum og fullorðinsfræðslu. Þær beinast m.a. að námi og kennslu einstakra námsgreina eða námssviða eða að almennari atriðum skólastarfs, s.s. kennslu barna með sérþarfir, lýðræði í skólastarfi, líðan og námsárangri og samstarfi við foreldra. Rannsóknir tengjast nokkrum rannsóknarstofum á sviðinu, m.a. um menntunarfræði ungra barna, upplýsingatækni og skólastarf, um skóla án aðgreiningar, mál og læsi og um kennslufræði. 

Sem dæmi um þverfaglega vinnu taka um tíu kennarar deildarinnar þátt í rannsóknarverkefninu Starfshættir í grunnskólum, sem hlaut styrk frá Rannís á árinu. Rannsóknin er á vegum Rannsóknarstofu um þróun skólastarfs og taka kennarar úr öðrum deildum Menntavísindasviðs, Háskólanum á Akureyri og frá nokkrum sveitarfélögum einnig þátt í henni.


Menntavísindastofnun
Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem starfrækt er við Menntavísindasvið. Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir og rannsóknarumhverfi innan Menntavísindasviðs. Stofnuninni er ætlað að styðja rannsóknarstofur og einstaka rannsakendur með því að veita aðstoð við gerð umsókna í rannsóknasjóði; bæði innlenda og erlenda samkeppnissjóði auk annarra fjármögnunarleiða. Einnig mun hún veita ráðgjöf og aðstoð við birtingu á niðurstöðum rannsókna, aðstoða við skipulag rannsókna og styðja við þróunarverkefni sem unnin eru á sviðinu.

Undir Menntavísindastofnun heyra sautján rannsóknarstofur Menntavísindasviðs

Reglur um Menntavísindastofnun tóku gildi 1. janúar 2010, sjá á slóðinni: 
http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_1023_2009.


Stefna Menntavísindasviðs í rannsóknum 2008-2013
 var samþykkt á fundi háskólaráðs Kennaraháskóla Íslands 24. júní 2008. Henni fylgir aðgerðaáætlun sem fylgt verður eftir með starfi Rannsóknarráðs. Það kemur í stað vísindaráðs sem hafði áður ábyrgð á rannsóknum við Kennaraháskóla Íslands. 

Rannsóknarráð hefur með höndum þróun rannsókna á sviðinu, framkvæmd aðgerðaáætlunar sem fylgir stefnunni og tengsl við rannsóknartengt framhaldsnám. Í nefndinni sitja fulltrúar allra deilda sviðsins, umsjónarmaður með doktorsnámi og framkvæmdastjóri rannsókna sem er formaður ráðsins.

Rannsóknir eru unnar af akademískum starfsmönnum, doktorsnemum, rannsóknarhópum og rannsóknarstofum.

deila á facebook

Vettvangsnám

Fundaröð Menntavísindasviðs um menntun kennara
Kennaramenntun í deiglu - vefur
Upptökur frá fundunum