Náms- og kennslufræði
Meistaranámi í náms- og kennslufræði er ætlað að dýpka þekkingu nemenda á námi og menntun, efla starfshæfni þeirra og veita þeim tækifæri til sérhæfingar á afmörkuðum fræðasviðum. Hægt er að ljúka meistaranámi í náms- og kennslufræði með M.Ed.- eða MA-gráðu.
Nám
Nám til M.Ed.-gráðu er starfstengt meistaranám. Námið hentar þeim sem vilja dýpka þekkingu sína í náms- og kennslufræði og sérhæfa sig á tilteknum sviðum kennslu.
Nám til MA.-gráðu er rannsóknartengt meistaranám. Áhersla er lögð á að koma til móts við mismunandi menntun og reynslu nemenda. Nemendum gefst kostur á að sérhæfa sig í rannsóknum á skólastarfi en einnig að skipuleggja nám sitt út frá eigin forsendum eða áhuga.
Kjörsvið
Nemendur sérhæfa sig með því að velja eitt af eftirfarandi kjörsviðum og þurfa að ljúka a.m.k. 30e á kjörsviðinu til að fá sérhæfinguna viðurkennda:
• Íslenska – íslenskukennsla
• Kennslufræði og skólastarf
• Listmenntun - listasaga - verkmenntun
• Mál og læsi
• Menntunar- og kennslufræði yngri barna
• Nám og kennsla erlendra tungumála
• Náttúrufræðimenntun
• Stærðfræðimenntun
• Upplýsingatækni og miðlun
Nemendum gefst einnig kostur á að taka viðbótardiplómu til 60 eininga. Þeir sem lokið hafa slíku námi geta sótt um að halda áfram námi til MA/M.Ed.-gráðu í náms- og kennslufræði og þurfa þá að bæta við sig 60 einingum.
Námið er ætlað starfandi kennurum á öllum skólastigum sem hafa starfað sem leiðbeinendur kennaranema eða hafa áhuga á að taka að sér slíka leiðsögn. Krafist er minnst tveggja ára kennslureynslu. Námið er bæði fræðilegt og hagnýtt og verkefnin eru starfstengd. Hægt er að taka eitt, tvö eða þrjú námskeið (þriðja námskeiðið um leiðsögn er unnt að taka við Háskólann á Akureyri) og nýta námskeiðin sem hluta af M.Ed.-námi.
Námskeið
Leiðsagnarhlutverkið - fagmennska sem markmið (haust)
Leiðsögn og starfsmenntun - rannsóknir, kenningar og stefnur (vor)
Leikskólakennarafræði, viðbótardiplóma
Leikskólakennarafræði, viðbótardiplóma er 60 eininga fræðilegt og starfstengt nám ætlað þeim sem lokið hafa BA-, B.Ed.- eða BS-prófi og hyggja á starf í leikskóla. Umsækjendur gætu t.d. hafa lokið grunnskólakennarafræði, uppeldis- og menntunarfræði, sálfræði eða faggreinum sem tengjast námssviðum samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, s.s. listum eða náttúruvísindum. Diplómunámið er metið sem hluti af meistaranámi og geta nemendur sótt um áframhaldandi nám í leikskólakennarafræði til M.Ed.-prófs (60e til viðbótar) sem er skilyrði fyrir leyfisbréfi til að nota starfsheitið leikskólakennari samkvæmt lögum nr. 87/2008.
Kennsla
Námið er skipulagt með sveigjanlegum hætti og eru tvær staðlotur á hverju misseri.
Húsnæði
Kennsla fer að mestu fram í Stakkahlíð en kennsla í list- og verkgreinum fer fram í Listgreinahúsi í Skipholti 37.
Hafa samband
Almenn erindi sendist á kennaradeild@hi.is.
Deildarstjóri Kennaradeildar er Sigríður Pétursdóttir sigridu@hi.is / 525-5917, skrifstofa á 2. hæði í Enni.
Nánari upplýsingar í kennsluskrá
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Fundaröð Menntavísindasviðs um menntun kennara
Kennaramenntun í deiglu - vefur
Upptökur frá fundunum



