Nám
Margar ólíkar leiðir er hægt að velja til að verða kennari í leik-, grunn- eða framhaldsskóla. Kennaranám er nú meistaranám og fleiri kostir eru í boði hvað varðar sérhæfingu en áður var. Hvort tveggja stuðlar að aukinni fagmennsku og ánægju í starfi og atvinnumöguleikar verða víðtækari.
Kennarar gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki og því hefur kennaramenntun lengi verið eftirsótt. Langflestir þeirra sem ljúka kennaranámi starfa við kennslu en menntunin nýtist jafnframt mjög vel í margvíslegum störfum öðrum, innan menntakerfisins eða á almennum vinnumarkaði.
Eftir meistarapróf sækja kennarar um leyfisbréf til að starfa í leik-, grunn- eða framhaldsskóla, samkvæmt lögum um kennaramenntun nr. 87/2008 og reglugerð nr. 872/2009.
- Leikskólakennarafræði er fyrir verðandi leikskólakennara og veitir heimild til þess að kenna í yngstu bekkjum grunnskóla með ákveðnu vali um sérhæfingu. Einnig má velja áherslu á listgreinar.
- Kennsla ungra barna í grunnskóla veitir full grunnskólakennararéttindi og heimild til að vinna með elstu börnum leikskóla með sérstöku vali.
- Grunnskólakennsla er námsleið fyrir verðandi kennara sem velja breiddina og sérhæfingu á tveimur sviðum, velja t.d. tvær kennslugreinar grunnskóla eða eina grein og eitt námssvið sem snýst um verkefni kennara þvert á námsgreinar og aldurhópa nemenda.
- Faggreinakennsla í grunnskóla er leið þeirra sem vilja sérhæfa sig í einni kennslugrein og fá auk þess heimild til að kenna greinina í byrjunaráföngum framhaldsskóla.
Þessar námsleiðir grunnnáms fyrir leik- og grunnskólakennara halda áfram í meistaranámi, en jafnframt er boðið upp á meistaranám fyrir starfandi kennara;
- Náms- og kennslufræði er leið starfandi kennara í framhaldsnámi og innan hennar má velja um sérhæfingu á fjölmörgum sviðum.
- Sérskipulagt nám er leið þeirra sem vilja móta eigin áherslur og sérhæfingu í framhaldsnáminu.
Verðandi framhaldsskólakennarar finna líka sínar námsleiðir innan kennaradeildar þegar þeir hafa lokið BA eða BS-gráðu í kennslugreinum.
- Kennslufræði framhaldsskóla M.Ed. er leið þeirra sem ætla að ljúka meistaranámi frá Menntavísindasviði með sérhæfingu í sinni kennslugrein og uppeldis- og kennslufræðiáherslu.
- Kennslufræði framhaldsskóla viðbótardiplóma er fyrir þá sem ætla að taka 60 einingar á Menntavísindasviði en ljúka meistaranámi í sinni fræðigrein.
- Leikskólakennarafræði viðbótardiplóma er fyrir þá sem vilja verða leikskólakennarar og hafa lokið BA, BS eða B.Ed. í grein sem tengist uppeldisfræði eða námssviðum leikskóla og hafa starfsreynslu af leikskóla.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Fundaröð Menntavísindasviðs um menntun kennara
Kennaramenntun í deiglu - vefur
Upptökur frá fundunum



