Um deildina



Við deildina er boðið upp á nám í íþrótta- og heilsufræði, tómstunda- og félagsmálafræði og þroskaþjálfafræði. Námið er fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna með fólki á vettvangi íþrótta og heilsu, tómstunda eða þroskaþjálfunar. Lögð er áhersla á að nemendur fái trausta vísindalega fagþekkingu og góða þjálfun á væntanlegum starfsvettvangi.

Grunnnám í íþrótta- og heilsufræði fer fram á Laugarvatni. Þar er framúrskarandi aðstaða til náms, útivistar, fjölskyldulífs, rannsókna og kennslu. 

Leiðandi á landsvísu

Námið er leiðandi á landsvísu og er deildin sú eina hérlendis sem býður upp á framhaldsnám í þessum námsgreinum. Starfsvettvangur er mjög fjölbreyttur s.s. skólar, íþróttaþjálfun, félagsleg þjónusta og vettvangur tómstunda og heilbrigðiskerfis.

deila á facebook