Rannsóknir
Helstu viðfangsefni rannsókna kennara við deildina eru á sviði íþrótta- og heilsufræða, næringarfræði, barna- og æskulýðsfræða, tómstundafræða, stjórnsýslu og félagsvísinda, þroskaþjálfafræða, fötlunarfræða, sálfræði og siðfræði.
Við Rannsóknarstofu í íþrótta- og heilsufræði er unnið að fjölda rannsókna. Meðal rannsóknarverkefna eru Lífsstíll 9 og 15 ára Íslendinga, Lífsstíll 7-9 ára barna, Líkams- og heilsurækt aldraðra og Heilsurækt sjómanna.
Rannsóknir og þróunarverkefni í tómstunda- og félagsmálafræði eru einkum á sviði félags- og uppeldisfræði. Sem dæmi um verkefni má nefna fagmennsku og starfsaðferðir í æskulýðsstarfi, einelti í ýmsum myndum og útivist og útilíf.
Í þroskaþjálfafræði hefur áhersla m.a. verið á lífssögu- og samvinnurannsóknir með fötluðu fólki, nýja hugmyndafræði um sjálfstætt líf hér á landi og leiðir við að útfæra hana, þjónustu við fötluð börn og fjölskyldur þeirra, greiningu á siðferðilegum álitamálum fagstétta, stöðu ungs fatlaðs fólks sem flytur úr foreldrahúsum og starfsmenntanám í háskóla fyrir fólk með þroskahömlun.
Menntavísindastofnun
Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem starfrækt er við Menntavísindasvið. Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir og rannsóknarumhverfi innan Menntavísindasviðs. Stofnuninni er ætlað að styðja rannsóknarstofur og einstaka rannsakendur með því að veita aðstoð við gerð umsókna í rannsóknasjóði; bæði innlenda og erlenda samkeppnissjóði auk annarra fjármögnunarleiða. Einnig mun hún veita ráðgjöf og aðstoð við birtingu á niðurstöðum rannsókna, aðstoða við skipulag rannsókna og styðja við þróunarverkefni sem unnin eru á sviðinu.
Undir Menntavísindastofnun heyra sautján rannsóknarstofur Menntavísindasviðs
Reglur um Menntavísindastofnun tóku gildi 1. janúar 2010, sjá á slóðinni:
http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_1023_2009.
Stefna Menntavísindasviðs í rannsóknum 2008-2013 var samþykkt á fundi háskólaráðs Kennaraháskóla Íslands 24. júní 2008. Henni fylgir aðgerðaáætlun sem fylgt verður eftir með starfi Rannsóknarráðs. Það kemur í stað vísindaráðs sem hafði áður ábyrgð á rannsóknum við Kennaraháskóla Íslands.
Rannsóknarráð hefur með höndum þróun rannsókna á sviðinu, framkvæmd aðgerðaáætlunar sem fylgir stefnunni og tengsl við rannsóknartengt framhaldsnám. Í nefndinni sitja fulltrúar allra deilda sviðsins, umsjónarmaður með doktorsnámi og framkvæmdastjóri rannsókna sem er formaður ráðsins.
Rannsóknir eru unnar af akademískum starfsmönnum, doktorsnemum, rannsóknarhópum og rannsóknarstofum.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd




