Þroskaþjálfafræði 180e


Printer-friendly version
Aðeins texti

Nám í þroskaþjálfafræði miðar að því að nemendur öðlist sérfræðiþekkingu og hæfni til þess að veita fötluðu fólki fjölbreytilega þjónustu og ráðgjöf í samfélaginu í þeim tilgangi að styðja við fullgilda samfélagsþátttöku þeirra, jafnrétti og lífsgæði á við aðra. Námið er þriggja ára fræðilegt og starfstengt 180 eininga grunnnám.

Meginfræðasvið í námi þroskaþjálfa eru þroskaþjálfafræði, fötlunarfræði, félagsfræði, þroskasálfræði og siðfræði. Nemendur kynnast þróun kenninga og hugmynda um fötlun og fá innsýn í nýjar íslenskar og erlendar rannsóknir og áherslur í búsetu-, atvinnu-, skóla- og fjölskyldumálum.

Nemendur geta sérhæft sig í starfi með börnum og unglingum eða í þjónustu við fullorðið fólk. Í þroskaþjálfanámi er lögð rík áhersla á að nemendur fái góða þjálfun á væntanlegum starfsvettvangi og kynnist starfi þroskaþjálfa og aðstæðum fatlaðra.  Þroskaþjálfar starfa vítt og breitt í velferðarkerfinu með fötluðu fólki á öllum aldri.

Sjá nánar í kennsluskrá