Móttaka nýnema
Móttaka nýnema í grunnnámi við Menntavísindasvið fer fram 22. ágúst. Nýnemar mæta í fyrirlestrarsal Menntavísindasviðs, Skriðu, kl. 8.30 um morguninn þar sem rektor og forseti Menntavísindasviðs flytja stutt ávörp. Sérstök nýnemadagskrá er í gangi til hádegis. Markmiðið með móttökunni er að nýnemar kynnist sviðinu og þeirri þjónustu sem er í boði.
Móttaka nýnema í íþrótta- og heilsufræði fer fram á Laugarvatni sama dag, 22. ágúst, í K-sal í skólahúsi.
Mikilvægt er að nýnemar mæti í móttökuna þar sem þeir fá leiðsögn um húsnæði sviðsins, kennslu í ýmsum tæknilegum málum, fræðslu um bókasafnið og hitta fulltrúa Stúdentaráðs. Nemendur fá einnig gott tækifæri til að kynnast samnemendum sínum.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd




