Atgervi ungra Íslendinga kannað

Um þessar mundir stendur yfir gagnasöfnun í stórri rannsókn Atgervi ungra Íslendinga sem rannsóknarhópur frá Mennta-vísindasviði Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri standa að. Tilgangur rannsóknarinnar er að rannsaka langtíma- og aldurshópabreytingar á heilsutengdum þáttum eins og holdafari, hreyfingu, þreki, andlegri líðan, og félagslegum þáttum eins og félagslegri samheldni.