Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Kristín flytur inngang að Mannlífi og kreppum og þakkar stuðningsaðilum átaksins. Helstu styrktaraðilar verkefnisins eru Alcan á Íslandi, Brim, Frumtök og Össur. Actavis styrkir einnig fyrirlestra um heilsutengd málefni. Allir fyrirlesarar gáfu vinnu sína. Styrkir eru nýttir til upptöku kvikmyndafyrirtækisins Kukls ehf. í útsendingargæðum á netinu. Engilbert og Kristín völdu fyrirlesara. Hver fyrirlestur er stuttur, varir frá 15 og upp í 23 mínútur.