Um brautina



Miðstöð í lýðheilsuvísindum

Dagleg umsýsla með náminu er í höndum Miðstöðvar HÍ í lýðheilsuvísindum (MLV). Auk þess að sinna kennslu og skipulagi kjarnafaga námsins, umsjón og aðstoð við nemendur, sér skrifstofan um skipulag styttri námskeiða, málþinga og fyrirlestra, oft í samstarfi við innlendar og erlendar stofnanir sem og aðrar deildir HÍ.

Heimilisfang skrifstofu MLV er:
Stapa við Hringbraut
101 Reykjavík


(finna Stapa á HÍ korti)

Forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum er Unnur Anna Valdimarsdóttir. Frekari upplýsingar berist á publichealth@hi.is

Þverfræðileg nálgun í alþjóðlegu samstarfi

Stofnun framhaldsnáms í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands var liður í framkvæmd þeirrar stefnu að nýta fjölbreytt fræðasvið og alþjóðleg tengsl skólans til þess að efla þverfræðilegt nám og rannsóknir.

Markmið lýðheilsuvísinda við Háskóla Íslands er að tengja saman vandað framhaldsnám og rannsóknir á sviðum lýðheilsu og birta niðurstöður í viðurkenndum vísindatímaritum á alþjóðavettvangi.

deila á facebook

Stundaskrá vormisseri 2012

Stundaskrá

Umsóknarfrestur um MPH nám og diplómanám á haustmisseri 2012 er til 15. apríl

Rafræn umsókn

Hvernig sækja á um framhaldsnám

Inntökuskilyrði