Meistaranám
Meistaranám í lýðheilsuvísindum (Master of Public Health, MPH)
Markmið meistaranámsins er að veita hagnýta og rannsóknartengda þekkingu á heilsu og heilsueflandi aðgerðum. Meistaranámið er 120 einingar og tekur að jafnaði 2 ár. Nemendur þurfa að hafa lokið BS/BA-prófi eða jafngildri prófgráðu með fyrstu einkunn frá háskóla til að geta hafið námið. Námið skiptist í kjarnanámskeið (42e), valnámskeið (18-48e) og 30 eða 60 eininga lokaverkefni.
Kjarnanámskeið
HAUSTMISSERI, 1. ÁR
LÝÐ101F Lýðheilsa: vísindi, stjórnmál, forvarnir 6 ECTS
LÆK102F Aðferðafræði B 6 ECTS
LÝÐ203F Áhrifavaldar heilbrigðis 6 ECTS
VORMISSERI, 1. ÁR
LÝÐ102F Faraldsfræði - megindleg aðferðafræði 6 ECTS
LÝÐ201F Líftölfræði I 6 ECTS
LÝÐ202F Verklag í vísindum 6 ECTS
HAUSTMISSERI, 2. ÁR
LÝÐ301F Líftölfræði II 6 ECTS
Námsefni og glærur í kjarnanámskeiðum eru að öllu jöfnu á ensku. Kennsla fer fram á íslensku nema hlutfall erlendra nema verði hærra en 10% af nemendafjölda námskeiðs. Í þeim tilfellum er kennt á ensku.
Valnámskeið
Öll námskeið á framhaldsnámsstigi við HÍ og erlenda samstarfsskóla sem tengjast áhugasviði og/eða lokaverkefni nemandans koma til greina sem valnámskeið. Nemandi skal bera valnámskeið undir umsjónarkennara sinn.
Hér er listi yfir nokkur námskeið við HÍ sem þykja vel fallinn sem valnámskeið í lýðheilsuvísindum (athugið að þessi listi er ekki tæmandi).
Nánari upplýsingar um kjarna og valnámskeið er að finna í kennsluskrá.
Rannsóknarverkefni
Á fyrsta misseri þróa nemendur hugmyndir sínar um rannsóknarverkefni og velja sér leiðbeinanda í samvinnu við umsjónarkennara námsins. Rannsóknaráætlun skal að öllu jöfnu liggja fyrir við lok annars misseris, að loknu námskeiðinu Verklag í vísindum. Nánari upplýsingar um 60 eininga rannsóknarverkefni.
Við val á lokaverkefni má hafa eftirfarandi áherslusvið í huga:
- Atvinnulíf og heilsa (Occupational Health)
- Áfengis- og vímuefnaforvarnir (Alcohol and Drug Dependence)
- Geðvernd (Mental Health Promotion)
- Heilsa barna og unglinga (Children, Adolescents and Health)
- Heilsa kvenna og kynheilbrigði (Women´s Sexual- and Reproductive Health)
- Heilsuhagfræði (Health Economics)
- Langvinnir sjúkdómar - áhættuþættir og lífsgæði (Chronic Illnesses - Risk factors and Quality of Life)
- Lýðheilsa í alþjóðlegu samhengi (Global Health Policy)
- Lyfjafaraldsfræði (Pharmacoepidemiology)
- Næring og heilsa (Nutrition and Health )
- Opinber stjórnsýsla á heilbrigðissviði (Health Administration)
- Sótt-, slysa og almannavarnir (Infectious Disease, Accidents and Disaster Preparedness)
- Umhverfi og heilsa (Environmental Science)
- Upplýsingatækni á heilbrigðissviði (Health Informatics)
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Stundaskrá vormisseri 2012
Umsóknarfrestur um MPH nám og diplómanám á haustmisseri 2012 er til 15. apríl


