Doktorsnám



DrPH Doktorsnám 180 e (Doctor of Public Health)

DrPH námið er 180e nám og tekur að jafnaði 3-4 ár. Meginhluti námsins, eða 150 einingar, byggir á sjálfstæðu rannsóknarverkefni en nemendur ljúka einnig að lágmarki 30 einingum í námskeiðum. Nemendum sem ekki hafa lokið MPH námi ber að ljúka ákveðnum kjarnanámskeiðum úr MPH náminu. Brautskráningardeild nemenda er deild umsjónarkennara/leiðbeinanda. Nemendur útskrifast með prófgráðuna Ph.D, Doctor of Public Health.  

Yfirlit yfir doktorsnema og doktorsverkefni í lýðheilsuvísindum má sjá hér.

Þeir sem hafa hug á að sækja um doktorsnám geta fengið nánari upplýsingar hjá: publichealth@hi.is

Enginn fastur umsóknarfrestur er um doktorsnám í lýðheilsuvísindum. Nánari upplýsingar um rannsóknaráætlun veitir verkefnastjóri Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum, publichealth@hi.is 

Umsóknareyðublað fyrir doktorsnám í lýðheilsuvísindum

Eyðublað um meðferð umsókna fyrir doktorsnám í lýðheilsuvísindum

Application form for doctoral studies in Public Health Sciences

Procedure for applications for doctoral studies in Public Health Sciences

Umsókn og fylgigögnum skal skilað á skrifstofu Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum, Stapa v. Hringbraut, 101 Reykjavík.

Umsóknir um doktorsnám eru lagðar fyrir námsstjórn. Samþykki stjórnin umsækjanda eru umsóknargögn send rannsóknarnámsnefnd til umfjöllunar. Umsækjandi er því næst kallaður fyrir nefndina. Frá því að námsstjórn samþykkir að senda umsókn til rannsóknarnámsnefndar og þar til formleg umsögn berst frá nefndinni geta liðið allt að 4-5 mánuðir. Umsækjendur geta sótt um að skrá sig í námskeið meðan beðið er.

deila á facebook

Stundaskrá vormisseri 2012

Stundaskrá

Umsóknarfrestur um MPH nám og diplómanám á haustmisseri 2012 er til 15. apríl

Rafræn umsókn

Hvernig sækja á um framhaldsnám

Inntökuskilyrði