Lýðheilsuvísindi
Stundatafla kjarnafaga
Viðburðadagatal á haustmisseri
Velkomin á vef Námsbrautar í lýðheilsuvísindum
Lýðheilsuvísindi við Háskóla Íslands er þverfræðilegt framhaldsnám sem miðar að aukinni þekkingu á heilsu og heilsueflandi aðgerðum. Námið er vettvangur vandaðra rannsókna á heilsufari og áhrifavöldum þess og er góður undirbúningur fyrir þá sem vilja leiða heilsueflingarstarf á eigin starfsvettvangi, ætla sér leiðtogahlutverk á hinum fjölmörgu sviðum heilbrigðismála eða vilja helga sig rannsóknum á sviðum lýðheilsu.
Samstarfsaðilar Námsbrautar í lýðheilsuvísindum og kennarar námsins koma frá innlendum og erlendum stofnunum sem eru í fararbroddi á sínum sviðum. Þetta gerir Háskóla Íslands kleift að bjóða upp á einstakt nám og tækifæri til rannsókna.
Breidd Háskóla Íslands gerir nemendum kleift að velja úr miklum fjölda valnámskeiða og móta þannig námið og rannsóknarefni í átt að sínu áhugasviði. Nemendur hafa einnig kost á að taka námskeið við erlenda samstarfsháskóla og stunda rannsóknir á eigin vinnustöðum eða við innlendar samstarfsstofnanir.
Þekkingarsköpun - forvarnir og heilsuefling
Markmið lýðheilsuvísinda við Háskóla Íslands er að tengja saman vandað framhaldsnám og rannsóknir á sviðum lýðheilsu og aðað birta niðurstöður þessara rannsókna í viðurkenndum vísindatímaritum á alþjóðavettvangi.
- Veldu HÍ
-
Nám
Námsframboð, Umsókn um nám, Til nýnema, Námsupplýsingar, nánar...
-
Þjónusta
Nemendaskrá, Náms- og starfsráðgjöf, Aðstaða, Styrkir, Háskólatorg, nánar...
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, nánar...
-
Samstarf
Alþjóðasamskipti, Innlent samstarf, Samningar, Atvinnulífið, nánar...
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Stefna HÍ, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Stefna HÍ, Starfsfólk, Stjórnskipulag, Lög og reglur, nánar...

