Um deildina
Í deildinni er skapandi samstarf á milli nemenda og kennara bæði í kennslu og rannsóknum. Í kennslunni, sem meðal annars fer fram í formi málstofa, er lögð áhersla á að virkja nemendur til rökræðu um viðfangsefnin. Í öflugu rannsóknanámi deildarinnar er náið samstarf nemenda og kennara sem miðar að því að nemendur verði sem hæfastir á sínu sviði.
Fornleifafræði fjallar um forn samfélög með því að rannsaka hvers kyns áþreifanlegar minjar um þau. Fornleifafræði fjallar fyrst og fremst um fortíðina, en í vaxandi mæli er aðferðum hennar einnig beitt til að greina samfélög nútímans.
Heimspeki er tilraun til að svara grundvallarspurningum, hvort sem þær varða hversdagslega reynslu, efnið, sálina, hugsunina eða æðri máttarvöld. Nemendur eru þjálfaðir í gagnrýninni hugsun, nákvæmum lestri frumtexta og skýrri rökræðu.
Klassísk fræði fást við menningarheima Forngrikkja og Rómverja og arf þeirra. Þau eru í senn sagn- og bókmenntafræði, heimspeki og málvísindi: þverfaglegur inngangur að grundvelli vestrænnar menningar.
Sagnfræði fæst við mannleg samfélög og einstaklinga, stjórnkerfi þeirra og stjórnmál, frelsi og ófrelsi, atvinnuvegi og efnahagslíf, hvers konar lifnaðarhætti og menningu í víðasta skilningi. Sagnfræðingar túlka og lesa heimildir á gagnrýnan og frjóan hátt. Því reynir á rökrétta hugsun, hugkvæmni og frumleika í starfi þeirra. Við miðlun sagnfræðilegs fróðleiks reynir líka á skýrleika í hugsun og leikni í meðferð máls.
Miðaldafræði dregur saman þekkingu á ólíkum sviðum, t.d. tungumálum, bókmenntum, sagnfræði eða tónlist, og nýtir hana við sérhæfðar og heildrænar rannsóknir á menningu þessa tímabils.
Hagnýt menningarmiðlun er MA-nám sem byggist á þverfaglegu samstarfi með það að markmiði að tengja saman íslenska sögu og menningu og opna nemendum nýjar leiðir í miðlun rannsókna sinna og þekkingar. Áhersla er lögð á að nemendur ljúki miðlunarverkefnum, tileinki sér fjölþætta framsetningu efnis og öðlist reynslu sem geri þeim fært að vinna sjálfstætt á sviði miðlunar.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.


