Nám


Nám í Sagnfræði- og heimspekideild
Í deildinni er skapandi samstarf á milli nemenda og kennara bæði í kennslu og rannsóknum. Í kennslunni, sem meðal annars fer fram í formi málstofa, er lögð áhersla á að virkja nemendur til rökræðu um viðfangsefnin. Í öflugu rannsóknanámi deildarinnar er náið samstarf nemenda og kennara sem miðar að því að nemendur verði sem hæfastir á sínu sviði.
Kennsluskrá
Grunnnám
Framhaldsnám

Fornleifafræði fjallar um forn samfélög með því að rannsaka hvers kyns áþreifanlegar minjar um þau. Fornleifafræði fjallar fyrst og fremst um fortíðina, en í vaxandi mæli er aðferðum hennar einnig beitt til að greina samfélög nútímans. 

Heimspeki er tilraun til að svara grundvallarspurningum, hvort sem þær varða hversdagslega reynslu, efnið, sálina, hugsunina eða æðri máttarvöld. Grunnnámskeið veita yfirlit yfir heimspekisöguna og innsýn í helstu greinar heimspekinnar: frumspeki, siðfræði, þekkingarfræði og rökfræði. Heimspeki er kennd til BA-, MA-, M.Paed.- og Ph.D.-prófs, og 90 eininga MA-prófs í fjórum greinum hagnýtrar siðfræði.

Klassísk fræði (30 eininga námsbraut í BA-námi) fást við menningarheima Forngrikkja og Rómverja og arf þeirra. Þau eru í senn sagn- og bókmenntafræði, heimspeki og málvísindi: þverfaglegur inngangur að grundvelli vestrænnar menningar.

Sagnfræði fæst við mannleg samfélög og einstaklinga, stjórnkerfi þeirra og stjórnmál, frelsi og ófrelsi, atvinnuvegi og efnahagslíf, hvers konar lifnaðarhætti og menningu í víðasta skilningi. Sagnfræðingar túlka og lesa heimildir á gagnrýnan og frjóan hátt. Sagnfræði er kennd á öllum námsstigum: til BA-prófs, MA-prófs og doktorsprófs.

Miðaldafræði dregur saman þekkingu á ólíkum sviðum, t.d. tungumálum, bókmenntum, sagnfræði eða tónlist, og nýtir hana við sérhæfðar og heildrænar rannsóknir á menningu þessa tímabils. Miðaldafræði er kennd til BA-prófs sem aukagrein.

Hagnýt menningarmiðlun er MA-nám sem byggist á þverfaglegu samstarfi með það að markmiði að tengja saman íslenska sögu og menningu og opna nemendum nýjar leiðir í miðlun rannsókna sinna og þekkingar.  

 

Síða uppfærð / breytt 25. maí 2010

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs