Fyrir nemendur



Sagnfræði- og heimspekideild býður upp á BA-nám á fjölda fræðasviða. Til BA-prófs er krafist minnst 180 eininga og eru heimspekileg forspjallsvísindi (5 einingar) innifalin. BA-nám eru þrjú ár miðað við full námsafköst.

Til BA-prófs eru fræðigreinar ýmist kenndar til 180, 120 eða 60 eininga og geta nemendur valið hvort þeir taka eina aðalgrein (180 e) eða aðalgrein (120 e) og aukagrein (60 e). Nemendur geta tekið aukagrein í annarri deild Háskólans og enn fremur er hægt að taka hluta af náminu við erlenda háskóla. Innan deildar er nemendum einnig heimilt að ljúka 120 eininga námi í tveimur aðalgreinum (samtals 240 e) og skrifa BA-ritgerð í báðum greinum. Teljast þeir þá hafa lokið BA-prófi í tveimur aðalgreinum.

Námsmat felst í skriflegum og/eða munnlegum prófum, æfingavinnu, verkefnum eða ritgerðum. Minnst 10 einingar skulu felast í samningu lokaritgerðar til BA-prófs.

Í öllum fögum innan deildarinnar þurfa nemendur að skrifa ritgerðir og er því grundvallaratriði að þeir kynni sér þær reglur sem gilda um ritgerðir, heimildavinnu, höfundarrétt o.s.frv. Þá gilda sérstakar reglur um samningu og frágang BA-ritgerða og sérstakt sniðmát er aðgengilegt fyrir þær hér á vefnum.

 

Síða uppfærð / breytt 26. janúar 2009

 

 

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs