Táknmálsfræði
|
Í táknmálsfræði er fyrst og fremst leitast við að kenna nemendum færni í íslensku táknmáli. Einnig er málfræði táknmálsins kennd og sömuleiðis saga og menning heyrnarlausra. Jafnframt fá nemendur innsýn í þýðingar og þjálfun í að þýða á milli íslensku og íslenska táknmálsins. Á þriðja námsári er unnið með túlkun á milli íslensku og íslensks táknmáls, bæði fræðilega og við raunverulegar aðstæður. |
Tengt efni |
Táknmálsfræði er bæði kennd sem aðalgrein og aukagrein. Einnig er boðið upp á nám í táknmálstúlkun. Markmiðið með táknmálsfræðum er annars vegar að búa nemendur undir rannsóknir á táknmáli og stöðu heyrnarlausra og heyrnarskertra og hins vegar að renna fræðilegum stoðum undir starf táknmálstúlka.
Kennsluhættir
Kennsla fer fram á íslensku og íslensku táknmáli. Þar sem táknmál hefur ekki ritmál er erfitt að tileinka sér það í sjálfsnámi. Þetta gerir það að verkum að í nokkrum námskeiðum innan táknmálsfræðinnar er nauðsynlegt að hafa mætingarskyldu.
Í námslýsingu í kennsluskrá er gefið upp ef um mætingarskyldu er að ræða. Lágmarksmætingarskylda er forsenda þess að stúdent öðlist próftökurétt.
Stúdentum sem lesa táknmálsfræði sem aukagrein til BA-prófs (60 einingar) er skylt að taka námskeiðin TÁK102G, TÁK103G, TÁK104G, TÁK201G, TÁK202G, TÁK203G og TÁK105G (nema þeir sem hafa lokið sambærilegu námskeiði). Önnur námskeið eru valin úr táknmálsfræði í samráði við umsjónarmann námsins.
Stúdentum sem lesa táknmálsfræði sem aðalgrein með aukagrein til BA-prófs (120 einingar) er skylt að taka öll námskeið á fyrsta námsári. Á öðru námsári þurfa stúdentar að taka námskeiðin TÁK302G, TÁK303G, TÁK403G auk BA-ritgerðar, 10 einingar að auki innan táknmálsfræðinnar og 10 einingar í valnámskeiðum (má vera námskeið innan táknmálsfræðinnar). Ath. að námskeið á öðru námsári eru ekki kennd árlega.
Stúdentum sem lesa táknmálsfræði sem aðalgrein án aukagreinar til BA-prófs (180 einingar) og ljúka þar með námi í táknmálsfræði og táknmálstúlkun er skylt að ljúka öllum 180 einingunum sem kenndar eru innan táknmálsfræðinnar. Forsenda þess að geta hafið nám í táknmálstúlkun er að stúdent hafi lokið öllum námskeiðum á fyrsta og öðru námsári.
Nám í táknmálstúlkun
Nám í táknmálstúlkun er í boði þriðja hvert ár, næst skólaárið 2012-2013. Til að geta stundað það nám skulu nemendur hafa lokið 120 einingum í táknmálsfræði og vera með fyrstu einkunn að meðaltali úr færninámskeiðunum fjórum. Önnur inntökuskilyrði eru ákveðin hverju sinni og geta breyst á milli ára.
Athugið! Nám í táknmálstúlkun er í boði þriðja hvert ár. Námskeið á öðru námsári eru að jafnaði ekki í boði það skólaár sem kennd eru námskeið í táknmálstúlkun.
Hagnýtt gildi
Rannsóknir á íslenska táknmálinu og menningu og sögu heyrnarlausra á Íslandi eru mjög stutt á veg komnar. Því er þörf fyrir fólk með fjölbreytta menntun í bland við menntun í táknmálsfræði. Mikil þörf er á táknmálstúlkum en einnig fólki sem getur starfað við rannsóknir eða kennslu á táknmáli, námsefnisgerð í táknmáli og öðrum fögum fyrir heyrnarlausa o.fl. Táknmálsfræði má því bæði stunda eina sér og í bland við fjölmargar aðrar greinar eins og íslensku, málvísindi, kennslufræði, félagsfræði, mannfræði og sálfræði svo eitthvað sé nefnt. Fólk með aðra menntun, eins og lögfræðingar, læknar, fólk í þjónustu o.s.frv., getur líka aukið starfsmöguleika sína með því að bæta við sig kunnáttu í íslensku táknmáli.
Félagslíf
Nemendafélag táknmálsfræðinema heitir Hending. Félag táknmálsfræðinema. Félagið er með síðu á Facebook.
Húsnæði
Kennsla í táknmálsfræði fer aðallega fram í Aðalbyggingu, en einhver námskeið eru kennd að hluta eða að öllu leyti í öðrum byggingum, þeirra á meðal Nýja-Garði, í Tungumálamiðstöð.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.i
Sími 525 4400
Verkefnastjóri deildar: Jóhanna María Vilhelmsdóttir, jovil@hi.is
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is
Síða uppfærð / breytt 25. nóvember 2010
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.


