Samfélagstúlkun
Með hraðvaxandi fjölgun innflytjenda frá ýmsum heimshornum hefur þörf fyrir túlka á fjölda erlendra mála aukist gríðarlega. Þetta stafar m.a. af lagaskyldu til að útvega túlka við tilteknar aðstæður á sviðum dóms-, heilbrigðis-, skóla- og félagsmála. Það hlýtur einnig að teljast hluti af viðleitni þjóðarinnar að gefa innflytjendum aukin tækifæri til aðlögunar með því að auðvelda samskiptin við íslensk stjórnvöld.
Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands vill leggja sitt af mörkum til að mennta tiltekinn hóp virkra innflytjenda sem náð hefur góðum tökum á íslensku og þekkir innviði íslensks samfélags nægilega vel til að miðla þeirri þekkingu til samlanda sinna og annast samskipti þeirra við Íslendinga þegar þörf krefur. Þetta er orðið ákaflega brýnt vegna fjölda útlendinga sem hér eru búsettir og einnig þeirra sem hér ferðast um landið á ári hverju, en þeir eru orðnir umtalsvert fleiri en íbúar landsins.
Nám í samfélagstúlkun er fyrst og fremst hugsað fyrir starfandi og verðandi túlka í málum sem ekki eru kennd við Háskóla Íslands og það verður aðeins í boði ef til þess fæst nauðsynlegt fjármagn.
Námsleiðir
Samfélagstúlkun er 60 eininga nám á grunnstigi sem miðar að því að þjálfa nemendur í túlkun á milli íslensku og erlends máls. Nemendur geta tekið samfélagstúlkun sem aukagrein með annarri aðalgrein eða lokið diplómanámi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða 5 ára starfsreynsla sem túlkur á milli íslensku og annars máls. Aðeins er hluti námskeiða í boði árlega og því ekki hægt að ljúka náminu á einu skólaári. Kenndar verða 35 einingar skólaárið 2009-2010 en þau námskeið (25 einingar) sem kenna á skólaárið 2010-2011 verða aðeins kennd ef fjármagn fæst.
Námstilhögun
Rúmlega helmingur námsins (35 einingar) felst í fræðilegum námskeiðum þar sem nemendur bæta við fræðilega þekkingu sína á túlkun, þýðingum, menningu og tungumálum og læra að yfirfæra þá þekkingu á raunverulegar aðstæður.
Tæpur helmingur námsins (25 einingar) er þjálfun í túlkun og er þar unnið í minni og stærri hópum eftir því hvaða tungumál nemendur nota í túlkun. Verkleg þjálfun í kennslustofu og á vettvangi er því stór hluti námsins.
Markmið og kröfur
Samfélagstúlkun fer fyrst og fremst fram í heilbrigðis- og skólakerfi, dómskerfi og félagsþjónustu. Markmiðið með þessu námi er að mennta tiltekinn hóp virkra innflytjenda sem náð hefur góðum tökum á íslensku og þekkir innviði íslensks samfélags nægilega vel til að miðla þeirri þekkingu til samlanda sinna og annast samskipti þeirra við Íslendinga þegar þörf krefur. Þetta er orðið ákaflega brýnt vegna fjölda útlendinga sem hér eru búsettir og einnig þeirra sem hér ferðast um landið á ári hverju, en þeir eru orðnir umtalsvert fleiri en íbúar landsins. Forkröfur eru ígíldi stúdentsprófs eða löng reynsla af túlkun hér á landi. Góð kunnátta í móðurmáli og íslensku nauðsynleg.
Hagnýtt gildi
Nám í samfélagstúlkun og fjölmenningu hefur ekki aðeins hagnýtt gildi fyrir nemendur sem það stunda og verða sérfræðingar í að miðla milli menningarheima á sviði einstaklingssamskipta heldur má líta á slíkt nám sem mikilvægan þátt í aðlögun samfélagsins og einstaklinganna að veruleika fjölmenningarinnar.
Innflytjendur nálgast brátt 10% af fjölda íbúa og eigi samskiptin milli hópa og einstaklinga að ganga sem best verður að vinna að því að gera samskiptin kleif og sem greiðust. Auk þess eru íslensk yfirvöld skyldug skv. lögum til þess í mörgum tilvikum að bjóða upp á túlkun. Það er því þörf fyrir æ fleira kunnáttufólk á þessu sviði. Það hefur alltaf verið heppilegra að fyrirbyggja misskilning en að leiðrétta hann eftir á.
Vel menntaðir samfélagstúlkar nýtast í heilbrigðis- og skólakerfi, dómskerfi og félagsþjónustu. Þeir geta auðveldað atvinnulífinu störf sín við leit að hæfu fólki og miðlað upplýsingum til þeirra sem nýta sér þjónustu þess. Góðir samfélagstúlkar auðga samfélagið með auðveldari samskiptum.
Síða uppfærð / breytt 25. nóvember 2010
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.


