Ritlist
|
Nám í ritlist er vettvangur sköpunar. Þar gefst áhugafólki um ritsmíðar kostur á að þroska hæfileika sína undir handleiðslu kennara sem eru jafnframt reyndir höfundar. Lögð er áhersla á frjóa hugsun og miðlun hennar í listrænum skrifum af ýmsu tagi. |
Tengt efni |
Þeirri spurningu hvort hægt sé að læra til rithöfundar verður ekki svarað í eitt skipti fyrir öll en víst er að nemandi sem leggur sig fram mun taka umtalsverðum framförum. Hann mun læra að vinna úr gagnrýni og þjálfast sjálfur í ritstjórnarvinnu.
Athugið! Greinin verður kennd á meistarastigi frá hausti 2011. Nánari upplýsingar (pdf)
Ritlist er boðin sem aðalgrein til 120 eininga og sem aukagrein til 60 eininga. Miðað er við að þátttakendur fái innsýn í helstu bókmenntaform, bæði sem lesendur og höfundar.
Tilhögun
Greinin skiptist í tvo meginþætti, ritsmiðjur og bókmenntanámskeið:
Í ritsmiðjum vinna þátttakendur að samningu ritverka undir handleiðslu reyndra höfunda. Smiðjurnar eru að öllu jöfnu sniðnar að ákveðnu bókmenntaformi, t.d. ljóðum, leikritum, kvikmyndahandritum, sögum, bókmenntaþýðingum eða esseyjum. Þátttakendur skila inn textum sem ræddir eru af öllum hópnum.
Til að ljúka ritlist sem aðalgrein þarf að skila 70 einingum í þessum hluta námsins og er þá BA-verkefni talið með. BA-verkefnið skal vera skapandi ritsmíð af einhverju tagi. Þeim sem taka ritlist sem aukagrein er ætlað að skila 40 einingum í ritsmiðjum en önnur námskeið eru valfrjáls.
Frá og með hausti 2009 þurfa allir sem taka ritlist sem auka- eða aðalgrein að ljúka námskeiðinu Gangvirki ritlistarinnar en aðrar ritsmiðjur eru valfrjálsar að svo miklu leyti sem framboð á námskeiðum gefur tilefni til.
Í bókmenntahlutanum er aðalgreinarnemum ætlað að taka þrjú skyldunámskeið: Bókmenntafræði, Íslenska bókmenntasögu og Heimsbókmenntasögu, en önnur námskeið eru valfrjáls. Til að ljúka BA-prófi í ritlist þarf að skila 50 einingum í þessum hluta námsins og er fólk hvatt til þess að heyja sér forða sem víðast.
Markmið
Í ritlistarnámi er stefnt að því að þátttakendur kynnist sköpunarvinnu og öðlist góða þjálfun í meðferð ritaðs máls. Að námi loknu verði þeir færir um að nálgast ritsmíðar með skapandi hætti, hvaða starfsvettvang sem þeir kjósa sér.
Húsnæði
Kennsla í ritlist fer einkum fram í Árnagarði og þar er skrifstofa umsjónarmanns námsins.
Félagslíf
Ritlistarnemar hafa stofnað sitt eigið félag, Ritvélina. Tilgangur þess er m.a. að standa að árlegri útgáfu á efni eftir ritlistarnema, efna til rýnifunda, upplestra, heimsókna í forlög og annars sem tengist ritlist. Einnig efnir greinin til samræðna við höfunda.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.i
Sími 525 4400
Umsjón með ritlistarnámi: Rúnar Helgi Vignisson, lektor. Vefur Rúnars.
Verkefnastjóri deildar: Jóhanna María Vilhelmsdóttir, jovil@hi.is
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is
Síða uppfærð / breytt 10. janúar 2011
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.


