Nám með vinnu



Fullt háskólanám miðast við 30 einingar á misseri, eða 60 einingar yfir námsárið. Fullt nám er sannarlega meira en full vinna og eru nemendur hvattir til að sinna námi sínu af kappi. Nemendur eru þó ekki skyldir til að taka námið á fullum hraða og geta, kjósa þeir svo, tekið færri en 30 einingar á misseri. Þó er skylt að ljúka á hverju ári ¾ af fullu námi. Hámarksnámstími til B.A.-prófs er fjögur ár (átta misseri) og hámarksnámstími til M.A.-prófs þrjú ár. Nemandi í hlutanámi til M.A.-prófs þarf að taka á hverju ári a.m.k. helming af fullu námi og skal ljúka námi innan fjögurra ára frá skráningu.

Nánari ákvæði um námstíma er að finna í 114. grein Reglna fyrir Háskóla Íslands.

 

Síða uppfærð / breytt 10. mars 2010

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí. 

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs