Menningarfræði



Í menningarfræði er helstu kenningum samtímans á sviði hug- og félagsvísinda stillt saman í tilraun til að byggja upp sjálfstæða og gagnrýna hugsun um samfélag og menningu.

M.A.-nám í menningarfræði – gagnrýnin samfélagsgreining
Við Háskóla Íslands og Háskólann á Bifröst

Menningarfræðin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst og útskrifast nemendur með sameiginlega gráðu frá báðum skólum.

Menningarfræði er ný námsleið við Íslensku- og menningardeild og er ætlað að auka þá fjölbreytni sem nemendum stendur til boða í framhaldsnámi. Menningarfræði hentar einkar vel þeim nemendum sem vilja auka við víðsýni sína og öðlast færni í gagnrýninni umfjöllun um samtímamenningu og þjóðfélagsmál.

Í menningarfræði kanna nemendur birtingarmyndir menningar hvarvetna í samfélaginu á fræðilegan hátt, án þess að vera bundnir einu afmörkuðu fræðasviði. Greinin leitast við að draga fram þau tengsl sem eru á milli ýmissa þátta nútímalífs: stjórnmála, borgarlífs og náttúruhugmynda, hugmyndafræði, valds og kynjahlutverka, þjóðernis og alþjóðamenningar, bókmennta, lista og afþreyingar, menningararfs, menntastefnu og fjölmenningar, fjölmiðla, fagurfræði og andófs.  

Markmið

  • að auka skilning á þróun og fræðilegum forsendum menningarfræði og stöðu hennar í dag,
  • að veita stúdentum þjálfun í að skilja birtingarmyndir menningar á ólíkum sviðum samfélagsins og greina þær á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt,
  • að miðla þekkingu á hugtökum og helstu vinnuaðferðum menningarfræði,
  • að veita nemendum þjálfun í að taka þátt í gagnrýninni umræðu á opinberum vettvangi. 

Kröfur Námið er sérstaklega ætlað nemendum með traustan bakgrunn á sviði hug- eða félagsvísinda sem hyggjast annaðhvort búa sig betur undir frekara nám á sínu sérsviði eða efla fræðilega þekkingu sína og kunnáttu til að geta betur tekist á við krefjandi störf í samfélaginu.
 
Námstilhögun Námið er skipulagt þannig að hægt sé að ljúka fullu 90 eininga námi ásamt ritgerð á einu ári. Nemendur stunda nám á Bifröst í mánaðarlöngum sumarlotum í upphafi námsins og við lok þess, en í Háskóla Íslands á haust- og vormisseri. Sérhver meistaranemi hefur frá upphafi náms umsjónarkennara sem hann getur ráðfært sig við varðandi rannsóknarverkefni og annað sem tengist náminu. 30 eininga rannsóknarverkefni verður unnið í skýrt skilgreindum vinnuþrepum á námstímanum, í samvinnu við leiðbeinanda.

Námskeið 2010-2011
Heimspeki 1: Greining – Jón Ólafsson (6 ects)

Kvikmyndafræði – Björn Ægir Norðfjörð (6 ects)

Menningarfræði og þjóðfélagsrýni – N.N. (10 ects)

Walter Benjamin – Ástráður Eysteinsson og Benedikt Hjartarson (10 ects)

Menning og andóf – N.N. (10 ects)

Menningarhagfræði – Ágúst Einarsson (6 ects)

Heimspeki 1: Gagnrýni – Jón Ólafsson (6 ects)

Stofnanir og stýring – Njörður Sigurjónsson (6 ects)

Nánari upplýsingar

Kynningarbæklingur (pdf)

Kennsluskrá

Áætlað námsframboð 2012-2013 (pdf-skjal).

Umsjónarmenn:

Jón Ólafsson, Háskólanum á Bifröst: jonolafs@bifrost.is
Benedikt Hjartarson, Háskóla Íslands: benedihj@hi.is

Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.i
Sími 525 4400

Verkefnastjóri framhaldsnáms: María Gestsdóttir, mariage@hi.is

Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí. 

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs