Íslenskukennsla
|
Markmið meistaranáms í íslenskukennslu er að veita nemendum kennslufræðilega og vísindalega þjálfun og búa þá undir að kenna íslensku í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Að loknu meistaraprófi í íslenskukennslu geta nemendur fengið leyfisbréf sem framhaldsskólakennarar. |
Tengt efni |
Umsóknarfrestur fyrir meistara- og doktorsnám á Hugvísindasviði er til 15. apríl fyrir innritun á haustmisseri, en erlendra umsækjenda utan EES-svæðisins til 1. febrúar. Umsóknarfrestur á vormisseri er til 15. október. Heimilt er að taka við umsóknum um doktorsnám á öðrum tímum ef sérstaklega stendur á. Umsóknum skal skilað til Nemendaskrár Háskóla Íslands á sérstöku rafrænu eyðublaði sem aðgengilegt er á vef skólans. Athugið að nauðsynlegt er að sækja sérstaklega um kennslufræðihluta námsins hjá Menntavísindasviði (diplómanám í kennslufræði).
Inntökuskilyrði
Aðgang að M.A.-námi í íslenskukennslu veitir B.A.-próf með fyrstu einkunn (7,25) í íslensku sem aðalgrein.
Aðgang að náminu geta einnig fengið nemendur með B.A.-próf í almennri bókmenntafræði ef þeir ljúka öllum kjarnanámskeiðum í íslenskri málfræði á B.A.-stigi (40 e); svo og nemendur með B.A.-próf í almennum málvísindum ef þeir ljúka öllum kjarnanámskeiðum í íslenskum bókmenntum á B.A.-stigi (40 e).
Nemendur með B.Ed.-próf af íslenskukjörsviði geta fengið aðgang að náminu samkvæmt sérstökum reglum og taka þá undirbúningsnámskeið á B.A.-stigi í íslensku í stað kennslufræðinámskeiða.
Nemendur með önnur háskólapróf, a.m.k. 180 e, geta einnig fengið aðgang að náminu ef þeir ljúka öllum kjarnanámskeiðum í íslenskri málfræði og íslenskum bókmenntum á B.A.-stigi (80e).
Í öllum tilvikum er fyrsta einkunn á B.A.-/B.Ed.-prófi skilyrði fyrir inngöngu.
Námsskipan
Til meistaraprófs er krafist 120 e að loknu B.A.-prófi (180 e). Við upphaf námsins velja nemendur á milli tveggja brauta: íslensku sem móðurmáls og íslensku sem annars máls. Þau námskeið sem skylt er að taka miðast að nokkru leyti við þetta val.
Fyrra árið, 60 e, felst í kennslufræðinámskeiðum sem eru tekin að miklu eða öllu leyti á Menntavísindasviði (diplómanám í kennslufræði). Nemendur með B.Ed.-próf taka þess í stað að mestu leyti undirbúningsnámskeið á B.A.-stigi í íslensku. Seinna árið skiptist í 30 e í námskeiðum á meistarastigi í íslenskri málfræði og íslenskum bókmenntum (a.m.k. 10 e í hvorri grein) og 30 e meistaraprófsritgerð. Val námskeiða er að nokkru leyti einstaklingsbundið og er því lögð mikil áhersla á samvinnu við leiðbeinanda. Ritgerðarefni velur stúdent í samráði við kennara sína.
Kennsluhættir og námsmat
Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, umræðna og margs kyns verkefnavinnu og ritgerðasmíði. Í kennslufræðihluta námsins sinna nemendur æfingakennslu í framhaldsskóla. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í kennslunni og í kennslufræðihlutanum er mikil hópvinna. Námsmat fer langoftast fram með ritgerðum og/eða fyrirlestrum.
Námsmarkmið
Að loknu námi er gert ráð fyrir að nemendur
- hafi þekkingu og skilning á völdum aðferðum og fræðikenningum sem beitt er við bókmennta- og málrannsóknir;
- hafi góða þekkingu á völdum tímabilum og/eða sviðum íslenskrar tungu og bókmennta;
- hafi innsýn í og skilning á þróun og stöðu þekkingar á sviði íslenskunáms og íslenskukennslu;
- þekki opinbera skólastefnu og námskrá á Íslandi og sérkenni hennar í samanburði við nálæg lönd;
- hafi þekkingu á námsgögnum í íslenskukennslu, kennsluleiðbeiningum og öðrum hjálpargögnum, hlutverki þeirra, eiginleikum og rannsóknum á notkun þeirra;
- hafi þekkingu á almennri kennslufræði og góða þekkingu á kennslufræði íslensku, annaðhvort sem móðurmáls eða annars máls, og geti ígrundað mismunandi stefnur, strauma og þróun greinarinnar;
- séu færir um að undirbúa íslenskukennslu í framhaldsskóla, einkum að afla gagna, velja kennsluaðferðir, búa til verkefni og ákveða námsmat;
- þekki og kunni að nýta sér helstu kennslutæki og hugbúnað sem völ er á til íslenskukennslu;
- hafi fengið nokkra reynslu af kennslu og starfsháttum í framhaldsskóla;
- hafi þróað með sér sjálfstæð vinnubrögð og séu undir það búnir að semja kennsluefni í íslensku, einir eða með öðrum.
Áætlað námsframboð 2012-2013 (pdf-skjal).
Framhaldsnám
Þeir sem hafa lokið M.A.-prófi í íslenskukennslu geta farið í meistaranám í íslenskri málfræði, íslenskum bókmenntum eða íslenskum fræðum. Þeir geta þá endurnýtt þær 30 e sem þeir hafa tekið í námskeiðum á meistarastigi og þurfa því að taka 90 e í stað 120 í nýja náminu.
Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.i
Sími 525 4400
Verkefnastjóri framhaldsnáms: María Gestsdóttir, mariage@hi.is
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.


