Algengar spurningar



Hvar og hvenær á ég að skrá mig í nám?
Árleg skráning fer fram í Uglu 22.-26. mars. Umsóknarfrestur um framhaldsnám rennur út 15. apríl, en um grunnnám 5. júní. Allar umsóknir eru rafrænar.

 Hvenær byrjar kennslan veturinn 2010-2011?
Kennsla á haustmisseri 2010 hefst mánudaginn 30. ágúst og lýkur föstudaginn 26. nóvember. Verkefnavika verður 11. október til 15. október. Kennsla á vormisseri 2011 hefst mánudaginn 10. janúar og lýkur föstudaginn 8. apríl. Verkefnavika verður 21. febrúar til 25. febrúar.

Er skylda að sækja tíma?
Meginreglan er sú að tímasókn sé frjáls. Þó er oft gerð krafa um tímasókn í námskeiðum þar sem kennslan byggist að hluta á framlagi nemenda, s.s. umræðu- og verkefnatímum. Upplýsingar um slíkt er að finna í kennsluskrá.

Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um inntökuskilyrði, mat á námi, námsskipan o.þ.h.?
Til Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur, verkefnastjóra deildarinnar, sími 525 4354, jmv2@hi.is.

Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um skiptinám?
Til Guðrúnar Birgisdóttur, verkefnastjóra alþjóðamála, sími: 525 4262, gb@hi.is.

Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um framhaldsnám?
Til Maríu Gestsdóttur, verkefnastjóra framhaldsnáms, sími 525 4401, mariage@hi.is.

Hvert sný ég mér með fyrirspurnir um námsval, úrræði vegna fötlunar og sérþarfa o.þ.h.?
Til Náms- og starfsráðgjafar Háskólans, sími 525 4315, radgjof@hi.is.

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí. 

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs