Fyrir nemendur



Boðið er upp á mjög fjölbreytt nám við deildina, bæði í grunnnámi og framhaldsnámi. Um er að ræða hefðbundið BA-nám auk diplómanáms í fjölmörgum greinum, meistaranám og doktorsnám. Nemendum gefst einnig kostur á að sveigja námið að eigin kröfum og áhugasviðum með því að blanda saman greinum.

Í öllum fögum innan deildarinnar þurfa nemendur að skrifa ritgerðir og er því grundvallaratriði að þeir kynni sér þær reglur sem gilda um ritgerðir, heimildavinnu, höfundarétt o.s.frv. Þá gilda sérstakar reglur um samningu og frágang BA-ritgerða og sérstakt sniðmát er aðgengilegt hér á vefnum.

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí. 

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs