Um deildina
Guðfræði- og trúarbragðafræðideild tilheyrir Hugvísindasviði Háskóla Íslands, en innan þess eru fjórar deildir.
Hugvísindasvið sér um stoðþjónustu til handa deildinni. Skrifstofa Hugvísindasviðs er til húsa í Aðalbyggingu, 3. hæð og er opin frá 10 - 12 og 13 - 15.
Sími: 525 4400
Fax: 525 4410
Netfang: hug@hi.is
Verkefnastjóri: Ásdís Guðmundsdóttir, sími 525 4400, asdisg@hi.is
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, sími: 525 4262, gb@hi.is
Um deildina
Guðfræðideild (nú Guðfræði- og trúarbragðafræðideild) er jafnan talin elst deilda Háskóla Íslands á þeim forsendum að Prestaskólinn var elstur þeirra embættismannaskóla sem sameinaðir voru og mynduðu Háskóla Íslands ásamt heimspekideild árið 1911, en Prestaskólinn tók til starfa 1847. Spannar þó saga Guðfræðideildar og Háskólans raunar víðara svið, því að halda má því fram að saga íslenskrar guðfræðimenntunar sé jafngömul sögu biskupsstóla landsins. Hvíla því stoðir deildarinnar á traustum grunni og fornum hefðum.
Löngum var litið á Guðfræðideildina sem prestaskóla fyrst og fremst, og námið við það miðað. Á síðari árum hefur námið við deildina hins vegar orðið æ fjölbreyttara og aukin áhersla til dæmis verið lögð á trúarbragðafræði og nýjar námsleiðir stofnaðar. Auk þess að leggja stund á hefðbundnar greinar guðfræðinnar kosta starfsmenn deildarinnar kapps um að mæta þörfum fjölmenningarlegs samfélags. Árið 2000 var í því skyni sett á laggirnar þverfaglegt nám í almennum trúarbragðafræðum. Þá fékk deildin árið 2006 heimild til að skipuleggja nám til kennsluréttinda í kristnum fræðum og almennum trúarbragðafræðum. Í deildinni stunda um 150 nemendur nám og fastráðnir kennarar eru 8 talsins. Fer allt starf deildarinnar fram í Aðalbyggingu Háskólans og hafa því nemendur afar gott aðgengi að kennurum.
Síða uppfærð / breytt 2. september 2010
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerðar: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindaþings.


