Nám


Nám í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild
Guðfræðideild er elsta deild Háskóla Íslands. Námið hefur á síðari árum orðið fjölbreyttara og aukin áhersla verið lögð á trúarbragðafræði. 
Kennsluskrá
Grunnnám
Framhaldsnám

Kennsla Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar fer að mestu leyti fram á annarri hæð í Aðalbyggingu Háskólans og þá sérstaklega í stofu 229, gegnt Háskólakapellunni. Innan deildarinnar eru eftirfarandi námsleiðir í boði sem leiða til prófgráða:

  • Nám til BA-prófs í guðfræði
  • Nám til embættisprófs að loknu BA-prófi, cand. theol.
  • Meistaranám, embættispróf í guðfræði, mag. theol., fyrir þá nemendur sem innrituðust í deildina frá og með hausti 2007
  • Nám til prófa í djáknafræðum
  • Þverfaglegt nám í almennum trúarbragðafræðum
  • Nám til MA-prófs í guðfræði
  • Nám til doktorsprófs í guðfræði

Allt nám í deildinni er metið í einingum (e) og teljast 60 einingar vera fullt nám yfir skólaárið. Tvær einingar svara til einnar vinnuviku í námi. Kennsla fer að mestu leyti fram í fyrirlestrum og umræðum. Kennari tilkynnir um tilhögun námsmats og prófs í upphafi námskeiðs. Við upphaf kennslu leggja kennarar fram kennsluáætlun og bókalista. Viðtalstímar kennara eru annaðhvort í fyrirfram auglýstum viðtalstímum eða eftir samkomulagi.

Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.is
Sími 525 4400

Verkefnastjóri deildar: Ásdís Guðmundsdóttir, asdisg@hi.is

Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is

Síða uppfærð / breytt 11. nóvember 2011

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerðar: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindaþings.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs