Djáknanám



Djáknanám er starfsréttindanám sem miðar að því að mennta djákna og gera þá í stakk búna til að gegna líknar- og fræðslustörfum í samvinnu við sóknarpresta. Einnig geta þeir starfað á einstökum stofnunum, s.s. á sjúkrahúsum.

Tengt efni

Djáknaembættið er sérstakt embætti innan kirkjunnar og eru djáknar því vígðir af biskupi.
Tvær námsleiðir eru í boði.

  • 180 e BA-nám með áherslu á greinar sem tengjast starfssviði djákna.
  • 60 e framhaldsnám sem viðbót við annað starfstengt háskólanám, einkum á sviði félagsráðgjafar, uppeldis- og hjúkrunarfræði.

Forkröfur
Um BA-námið gilda almenn inntökuskilyrði H.Í., þ.e. stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun. Fyrir 60 e námið er krafist háskólaprófs í uppeldis- eða heilbrigðisfræðum, s.s. kennslu- eða hjúkrunarfræði, félagsráðgjöf eða sálarfræði. Aðeins er innritað í 60 e námið (viðbótarnám) annað hvert ár. Næsta innritun verður á haustmisseri 2009. 

Námið
Þriggja ára djáknanám til BA.-prófs er 180 e sem samanstendur af:

  • 60 e kjarna, önnur námskeið í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild
  • 54 e, bundið val á Félagsvísindasviði 34 e,
  • 20 e  val
  • BA ritgerð 10 e.

Kjarninn er sameiginlegur öllum þeim sem taka BA.-próf í guðfræði. Þar eru ýmis inngangsnámskeið í guðfræði, s.s. gamla- og nýjatestamentisfræðum, siðfræði og trúarbragðafræðum. Í viðbótarnámskeiðum er meira farið út í hin ýmsu málefni sem tengjast djáknastarfinu beint, s.s. sálgæslu, guðfræði díakoníunnar, trúarlífsálarfræði og trúarlífsuppeldis- og kennslufræði Bundna valið samanstendur af námskeiðum í Félags- og mannvísindadeild.

Jafnhliða djáknanáminu er starfsþjálfum á vegum Þjóðkirkjunnar sem er skilyrði til starfsréttinda.

Líf að loknu námi
Starf djáknans felst í líknar- og fræðslustörfum í söfnuðum, þeir heimsækja aldraða og sjúka, sjá um fræðslu, t.d. barna- og unglingastarf, sem og starf fyrir fullorðna. Einnig sinna þeir sálgæslustörfum í söfnuðum og inni á stofnunum í samvinnu við sóknar- eða sjúkrahúspresta.

Húsnæði
Kennsla Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar fer að mestu leyti fram á annarri hæð í Aðalbyggingu Háskólans og þá sérstaklega í stofu 229, gegnt Háskólakapellunni.

Félagslíf
Félag guðfræðinema er hagsmunafélag þeirra er stunda nám við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Það heldur úti vefnum fiskurinn.is og gefur út tímaritið Orðið.

Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.is
Sími 525 4400

Verkefnastjóri deildar: Ásdís Guðmundsdóttir, asdisg@hi.is

Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is

Síða uppfærð / breytt 24. nóvember 2010

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerðar: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindaþings.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs