Almenn trúarbragðafræði



Nám í trúarbragðafræði felst í samanburði á trúarbrögðum og könnun á uppruna þeirra, þróun og sérkennum. Gerð er grein fyrir heimsmynd þeirra, kenningum þeirra um manninn og afstöðu þeirra til samfélagsins, ekki síst með hliðsjón af hugmyndum þeirra um vald og lífsgæði. Fjallað er um skilgreiningar og aðferðafræði almennra trúarbragðafræða og sýnt hvernig þau skarast við önnur fræðasvið.

Tengt efni

Um námið
Um er að ræða eins árs fræðilegt grunnnám við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Námið er þverfræðilegt á sviðum guðfræði, hug- og félagsvísinda. Námið er aukagrein til BA-prófs.

Markmið námsins er að nemandinn búi að því loknu yfir þekkingu á helstu undirstöðuatriðum, kenningum og hugtökum trúarbragðafræðanna auk þess að hann kunni skil á helstu rannsóknaraðferðum trúarbragðafræðanna.

Þar sem trúarbrögð eru samofin menningunni kemst enginn undan áhrifum þeirra. Heimsmynd manna og lífviðhorf mótast mikið til af trúararfleiðinni og hún birtist á margvíslegan hátt í atferli þeirra og verkum. Í stjórnmálum, bókmenntum og listum er glímt við grundvallarspurningar mannsins með hugtökum og táknum sem oftar en ekki eiga rætur að rekja til trúarhefðarinnar.
 
Magnús Þorkell Bernharðsson er lektor í trúarbragðafræðum við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild.

Húsnæði
Kennsla Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar fer að mestu leyti fram á annarri hæð í Aðalbyggingu Háskólans og þá sérstaklega í stofu 229, gegnt Háskólakapellunni. 

Námsnefnd í trúarbragðafræðum:
Pétur Pétursson, prófessor í Guðfræði- og trúarbragðafræðideild
Sigríður Þorgeirsdóttir, dósent í Sagnfræði- og heimspekideild
Terry Gunnell, dósent í Félags- og mannvísindadeild

Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.is
Sími 525 4400

Verkefnastjóri deildar: Ásdís Guðmundsdóttir, asdisg@hi.is

Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is

 

Síða uppfærð / breytt 24. nóvember 2010

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerðar: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindaþings.

 

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs