Um deildina
Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda varð til 1. júlí 2008 þegar nýtt skipulag Háskóla Íslands tók gildi. Þá sameinuðust þrjár skorir þáverandi Hugvísindadeildar: enskuskor, skor þýsku og Norðurlandamála og skor rómanskra og klassískra mála.
Við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda eru nú kennd þrettán erlend tungumál: danska, enska, franska, gríska, ítalska, japanska, kínverska, latína, norska, rússneska, sænska, spænska, þýska. Hægt er að ljúka BA-gráðu í þeim öllum. Einnig er boðið upp á hagnýtar námsleiðir i sumum þeirra.
Nám við deildina er margþætt og krefjandi þar sem flest námskeið eru kennd á erlendum tungumálum. Nemendur fá þjálfun í að hugsa og tjá sig á erlendu tungumáli um leið og þeir leggja stund á akademískt nám í fræðigrein sinni.
Rannsóknatengt framhaldsnám við deildina er í örum vexti. Meistara- og doktorsnám er hægt að stunda í sex námsgreinum: annarsmálsfræðum, dönsku, ensku, frönskum fræðum, spænsku og þýsku. Í samstarfi við Íslensku- og menningardeild er hægt að leggja stund á meistaranám í þýðingafræði, nytjaþýðingum og túlkun.
Fastir kennarar við deildina eru á fjórða tug og fjöldi stundakennara tekur einnig þátt í kennslu.
Deildarforseti: Ásdís Rósa Magnúsdóttir.
Varadeildarforseti : Matthew Whelpton
Námsbrautarformaður / enska: Ingibjörg Ágústsdóttir
Námsbrautarformaður / Norðurlandamál, kínverska, rússneska og þýska: Þórhildur Oddsdóttir
Námsbrautarformaður / rómönsk mál, gríska, latína og japanska: Erla Erlendsdóttir
Stoðþjónusta
Hugvísindasvið sér um stoðþjónustu til handa deildinni. Skrifstofa Hugvísindasviðs er til húsa í Aðalbyggingu, 3. hæð og er opin frá 10 - 12 og 13 - 15.
Sími: 525 4401
Fax: 525 4410
Verkefnastjóri: María Gestsdóttir verkefnisstjóri, sími 525 4401 eða mariage@hi.is.
Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, sími: 525 4262, gb@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.



