Viðburðir



Asíusetrið stendur fyrir ráðstefnum, málþingum og fyrirlestrum sem tengjast málefnum Asíu.

Nýir viðburðir

Eldri viðburðir
Fyrsta ráðstefna ASÍS var haldin 11. nóvember 2006 en hún fjallaði um tímabil Mao Zedong í Kína og var haldin við Háskóla Íslands í samstarfi við Kínversk-íslenska menningarfélagið. Sjö erlendir og tveir innlendir fyrirlesarar héldu aðgengileg og fróðleg erindi um ýmis efni sem tengjast tímabili Maos í Kína.

Í apríl 2007 var haldinn morgunverðarfundur um viðskiptatækifæri í Kína á „Kínversku sumri“ á Akureyri. Og í byrjun júní sama ár var haldin ráðstefna um kynjatengda Asíufræði í samstarfi við hin norrænu samtök Gendering Asia Network. Ráðstefnuna sóttu nærri 30 manns af 16 mismunandi þjóðernum.

Frá upphafi hefur ASÍS einnig skipulagt heimsóknir fjölmargra sérfræðinga um málefni Asíu sem haldið hafa erindi og rætt við íslenska fjölmiðla. Á meðal gesta ASÍS hafa verið Göran Malmquist, Sænsku vísindaakademíunni, Henry Rosemont Jr., Brown háskóla og Maryland háskóla, Chung-ying Cheng, Hawaii háskóla, Kerry Brown, Chatham House, Geir Helgesen, NIAS - Norrænu Asíustofnuninni, Cecilia Milwertz, NIAS - Norrænu Asíustofnuninni, Elaine Jeffreys, Tækniháskólanum í Sydney, Jan Vihan, Harvard háskóla, Mirja Juntunen, Nordic Centre in India, Bala Murughan Kamallakharan, þróunarsviði Glitnis, Tong Shijun, Vísindaakademíunni í Shanghai o.m.fl.

Í maí 2009 var haldin taílensk menningardagskrá í samstarfi við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og í júní ráðstefnan China's Economy, Environment and Education í samstarfi við Nordic Association for China Studies og Nordic NIAS Council

 

Síða uppfærð 25. september 2009

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs