Um stofnunina
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós var formlega stofnuð þann 16. maí 2008 við Háskóla Íslands í samvinnu við Hanban, undirstofnun Menntamálaráðuneytis Alþýðulýðveldisins Kína, og Ningbo háskóla. Viðstödd opnunarhátíðina voru meðal annars Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Eiður Guðnason, fyrrverandi sendiherra í Kína og sex manna sendinefnd frá Kína, þar á meðal Ye Fei fan, aðstoðarrektor Ningbo háskóla.
Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að aukinni fræðslu á meðal Íslendinga um tungu, menningu og samfélag Kína með námskeiðum, fyrirlestrum, ráðstefnum, ljósmynda- og kvikmyndasýningum, o.fl.
Verkefni Konfúsíusarstofnunarinnar hafa verið ærin frá upphafi. Hún annast kínverskukennslu í námsleið kínverskra fræða við Háskóla Íslands, skipuleggur ýmis námskeið um kínverska tungu og menningu í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands, hefur umsjón með hluta kínverskukennslu við Háskólann í Reykjavík og stendur fyrir margvíslegum viðburðum við Háskóla Íslands. Fyrir tilstilli stofnunarinnar geta nemendur í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands hlotið styrki til náms í Kína. Einnig hafa kínverskukennarar á Íslandi möguleika á veglegum styrkjum til að öðlast kennsluþjálfun í Kína.
Á meðal stærri viðburða á vegum stofnunarinnar má nefna kúng-fú sýninguna í febrúar 2011 og málstofuna „Hvað hugsar Kína?‟ um kínverska heimspeki og trúarbrögð, sem haldin er við Háskóla Íslands í mars 2011.
Við stofnunina starfa að jafnaði tveir reyndir gestakennarar frá Ningbo háskóla auk tveggja íslenskra sérfræðinga. Geir Sigurðsson, dósent í kínverskum fræðum, er forstöðumaður, Qingqiang He og Yucheng Jia, lektorar við Ningbo háskóla, hafa verið gestakennarar stofnunarinnar frá haustönn 2010 og febrúar 2011. Jón Egill Eyþórsson, aðjúnkt, hefur auk þess gegnt stundakennslu við stofnunina.
Síða uppfærð / breytt 11. apríl 2011
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.



