Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur



Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum er rannsóknastofnun innan Hugvísindastofnunar. Stofnunin er rannsóknavettvangur kennara deildarinnar sem fást við erlend tungumál og fornfræði.

Frá haustmisseri 2001 hefur stofnunin notið þess heiðurs að bera nafn Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrum forseta Íslands. Vigdís er velgjörðarsendiherra tungumála hjá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) en áður kenndi hún erlend tungumál um árabil og hefur stutt tungumálakennslu í verki á margvíslegan hátt.

Stofnunin leggur kapp á að efla rannsóknir og þróunarstarf tengt erlendum tungumálum. Stefnt er að því að ráða framhaldsnema í tungumálum og sérfræðinga á sviði erlendra tungumála, menningar-, kennslu- og þýðingarfræða til rannsóknastarfa.

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs