Samstarf
ASÍS hefur leikið lykilhlutverk í að koma á legg Konfúsíusarstofnun við Háskóla Íslands. Konfúsíusarstofnunin Norðurljós var formlega stofnuð við hátíðlega viðhöfn 16. maí 2008. Er sú stofnun þegar mikill aflvaki fyrir þróun kínverskunáms og kínverskra fræða á Íslandi.
Asíusetrið starfar einnig náið með öðrum rannsóknarstofnunum á sviðum Asíufræða og háskólum í Asíu. Ber þar helst að nefna Norrænu Asíustofnunina (NIAS) í Kaupmannahöfn sem er tengill setursins við aðrar norrænar menntastofnanir.
Háskóli Íslands er einn 27 aðildarháskóla er mynda Nordic NIAS Council sem rekur Norrænu Asíustofnunina og hefur ASÍS umsjón með störfum skólans á þessu sviði. Ísland gegndi varaformennsku 2008 og gegnir nú formennsku árið 2009. Á meðal annarra erlendra stofnana og félaga sem Asíusetrið starfar með má nefna eftirfarandi:
Kínafræðastofnun University College Cork
Asíufræðasetur Vilnius háskóla
Nordic Association for China Studies - NACS
Nordic Centre, Fudan háskóla, Shanghai
Beijing Foreign Studies University
ASÍS leggur sig einnig í líma við að starfa með innlendum samtökum, félögum og stofnunum. Má þar nefna Heimspekistofnun Háskóla Íslands, Rannsóknarstofu í kynja- og kvennafræðum, Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum, báðar einnig við Háskóla Íslands, Íslensk-kínverska viðskiptaráðið, Íslensk-indverska viðskiptaráðið, Kínversk-íslenska menningarfélagið, Taílensk íslenska sambandið og félag Taílendinga á Íslandi.
Asíusetrið leggur áherslu á að byggja upp virk samstarfsnet við asíska háskóla og námsbrautir í Asíufræðum í Evrópu. Slík samstarfsnet tryggja öðru fremur áframhaldandi uppbyggingu akademískra Asíufræða við íslenska háskóla í framtíðinni.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd
Skil lokaritgerða vormisseris
Skil BA ritgerða: 10. maí.
Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.
Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.



