Rannsóknir



Rannsóknir eru það sem greinir háskóla frá öðrum fræðslustofnunum og viðamiklar og vandaðar rannsóknir eru keppikefli metnaðarfullra háskóla, háskólakennara og stúdenta. Fjölbreytt fræða- og rannsóknastarf fer fram í deildinni. Afrakstur  þessara rannsókna birtist árlega í fjölmörgum bókum, greinum og ritgerðum. Upplýsingar um birt rit kennara má fá í Ritaskrá Háskóla Íslands en prófritgerðir nemenda eru varðveittar í Skemmunni.

Rannsóknir á sviði hugvísinda hafa lengstum verið einyrkjastarf – fræðimaðurinn hefur glímt við rannsóknir sínar einn og óstuddur. Á seinustu árum hefur þó samstarfsverkefnum á sviði hugvísinda farið ört fjölgandi. Þau verkefni eru þá oft unnin í tengslum við einhverja af þeim rannsóknastofnunum sem starfa innan Háskólans.

Rannsóknir innan Deildar erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda eru afar fjölbreyttar. Þær tengjast ólíkum menningarheimum og málsvæðum en lúta þó einkum að bókmenntum, þýðingum, málvísindum og annarsmálsfræðum.  

Eftirtaldar stofnanir eru starfræktar á fræðasviði deildarinnar:

 

Síða uppfærð / breytt 3. janúar 2011

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs