Nám



 

Nám í Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda
Við deildina er boðið upp á fjölbreytt nám á sviði asíufræða, kennslu í Norðurlandamálum, helstu þjóðtungum Evrópu og Ameríku auk fornmála.
Kennsluskrá
Grunnnám
Framhaldsnám

Í boði er nám á eftirfarandi sviðum:

  • Asíufræði: japanska og kínverska
  • Norðurlandamál: danska, norska og sænska 
  • Helstu þjóðtungur Evrópu og Ameríku: enska, franska, ítalska, rússneska, spænska og þýska 
  • Fornmál: gríska og latína (dyr að menningu Evrópu frá upphafi)

Með tungumálakunnáttu sinni og fræðilegri innsýn í málvísindi, bókmenntir og menningu afla nemendur sér þekkingar og færni til að takast á við áhugaverð alþjóðleg störf, t.d. í alþjóðasamskiptum, ferðaþjónustu og viðskiptum eða störf tengd þýðingum, fjölmiðlum, menningu, almannatengslum og stjórnsýslu og tungumálakennslu.

Allar greinar deildarinnar er hægt að læra til BA-gráðu (3 ára nám) og sumar einnig til diplómagráðu (1½ árs hagnýtt nám) sem og til MA-gráðu (5 ára nám) eða doktorsgráðu (3 ára nám).

 

Síða uppfærð / breytt 3. janúar 2011

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs