Enska



Nám í ensku við Háskóla Íslands er fræðilegt yfirlit yfir ensk málvísindi, bókmenntir, menningu og ensku sem heimsmál. Forsenda námsins er að nemendur hafi mjög góða færni í enskri ritun og talmáli.

Tengt efni

Hagnýtt gildi
Enska er heimstungumál í alþjóðlegum viðskiptum, vísindum og mennta- og menningarmálum.

Í netvæddu nútímasamfélagi eru fá störf sem ekki krefjast góðrar enskukunnáttu: störf við fjölmiðla, tölvu- og netfyrirtæki, störf á alþjóðavettvangi og í ferðaþjónustu, skrifstofu- og stjórnunarstörf, kennsla, þýðingar o.fl.

Enska er lykillinn að framhaldsnámi og starfi, bæði á Íslandi og erlendis. Enn fremur er enska lykillinn að mörgum menningarheimum, sérstaklega bókmenntum, tónlist og kvikmyndum Bretlands, Bandaríkjanna, Kanada, Indlands, Ástralíu, Nýja-Sjálands, margra Afríkuþjóða og nokkurra Asíulanda. Enska er ekki einungis tungumál Shakespeares og Whitmans, heldur líka NASA og alþjóðavefsins – og einnig Hitchcocks, Kubricks, Presleys og Lennons!

Enskukunnáttan er því ómissandi í nútímaheimi; í menntun, starfi, menningu og frístundum. Háskólanám í ensku er því ómetanlegur stökkpallur út í lífið!

Námsleiðir
Enska er kennd til BA-gráðu (sem aðalgrein og aukagrein), til MA-gráðuog til MA-gráðu í enskukennslu. BA-nám tekur að jafnaði þrjú ár, MA-nám tekur tvö ár miðað við full námsafköst.

Kennsluhættir og  námstilhögun
Kennsla í ensku fer fram í formi fyrirlestra, málstofa, einstaklingsviðtala, sjálfsnáms o.s.frv., allt eftir eðli námskeiðsins og námsefnisins.

Við leggjum áherslu á að kennslan sé eins sveigjanleg og hægt er og að kennsluefni sé fjölbreytt og margvíslegt. Það er okkur því sönn ánægja að geta boðið upp á allt BA-nám á fyrsta ári í fjarkennslu. Upptökur af fyrirlestrum, glærur auk ýmissa annarra stafrænna gagna eru aðgengilegar á netinu. Nemendur geta nálagst þetta efni á hvaða tíma sólarhrings sem er!

Húsnæði
Kennsla fer fram í öllum helstu byggingum á Háskólasvæðinu, allt eftir stærð námskeiða.

Félagslíf
Nemendafélag enskunema heitir Bog.

Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.is

Verkefnastjóri deildar: María Gestsdóttirmariage@hi.is.

Verkefnastjóri alþjóðamála : Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is

Síða uppfærð / breytt 24. nóvember 2010

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs