Austur - Asíufræði



Austur-Asíufræði er þverfagleg fræðileg námsgrein sem einbeitir sér að Austur-Asíu, þá einkum Kína, Japan og Kóreu. Hún hentar þeim sem hyggjast kynna sér nánar samfélög og menningu Austur-Asíu án þess að leggja stund á tungumálanám.

Tengt efni

 

Austur-Asíufræði er einungis kennd sem 60 eininga aukagrein. Námið felur í sér ýmis samfélags- og menningartengd námskeið sem einkum tengjast Kína og Japan. Þar á meðal fær löng og viðburðarík saga þessara þjóða talsvert rými en nemendur fá einnig innsýn í þróun nútímasamfélagsins og kínverskt eða japanskt viðskiptaumhverfi.

Menningar- og félagslíf
Til viðbótar við námskeiðin skipuleggja kennarar og nemendur námsleiðarinnar í Austur-Asíufræðum ýmsa menningarviðburði. Viðburðum þessum er bæði ætlað að dýpka skilning nemenda og almennings á Austur-Asíu og vekja athygli á náminu. Margir þeirra eru skipulagðir í samvinnu við stofnanir á borð við Asíusetur Íslands (ASÍS) og Konfúsíusarstofnunina Norðurljós.

Hafðu samband
Skrifstofa Hugvísindasviðs
Aðalbygging, 3. hæð v/ Suðurgötu
101 Reykjavík
hug@hi.is

Verkefnastjóri deildar: María Gestsdóttir, mariage@hi.is.

Verkefnastjóri alþjóðamála: Guðrún Birgisdóttir, gb@hi.is

deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs