Námsmat og reglur



Reglur um nám á Hugvísindasviði

Reglur um nám á Hugvísindasviði er að finna í stjórnsýslukafla sviðsins.

Reglur um ný inngangsnámskeið í Deild erlendra tungumála

Eftirtalin námskeið eru skyldunámskeið fyrir alla þá nemendur sem hefja nám í erlendum tungumálum við Hugvísindasvið Háskóla Íslands haustið 2009.*

DET101G Inngangsnámskeið í erlendum tungumálum I:
Vinnulag og aðferðir í hugvísindum (haustönn fyrsta árs; 5e)

DET201G Inngangsnámskeið í erlendum tungumálum II: Hugmyndasaga og tungumál (vorönn fyrsta eða annars árs; 5e)

Þetta á við um nemendur sem skráðir eru í erlendu tungumáli sem aðalfag, þ.e. til 120 eða 180 eininga. Nemendur í ensku verða að taka DET102G, sem er á ensku en með sama námsefnið, í stað fyrir DET101G; nemendur í öðrum tungumálum sem treysta sér ekki að taka DET101 á íslensku má líka taka DET102G á ensku í staðinn.

Nemendur sem þegar eru komnir á annað og/eða þriðja ár og ekki hafa tekið Heimspekileg forspjallsvísindi (skyldunámskeið í gamla kerfinu) mega velja milli Heimspekilegra forspjallsvísinda eða eins af nýjum inngangsnámskeiðum í erlendum tungumálum (DET101G; DET102G; DET201G) í staðinn.

Nemendur sem þegar hafa tekið forspjallsvísindi þurfa hvorugt námskeiðið að taka nema þeir svo óski.

*Nemendur með japönsku eða kínversku sem aðalgrein þurfa ekki að taka DET201G

Einkunnaviðmið

Eftirfarandi einkunnaviðmið gilda fyrir deildir Hugvísindasviðs. 

Einkunn Lýsing
Ágætiseinkunn: 
9,0-10. 
Frammistaða nemandans er afburðagóð og ber óvenju skýran vott um þá þekkingu, skilning og hæfni sem gert er ráð fyrir í öllum hæfniviðmiðum námskeiðsins. Ágallar eru litlir sem engir. 
Fyrsta einkunn:
7,5-8,5 
Frammistaða nemandans er mjög góð og ber skýran vott um þá þekkingu, skilning og hæfni sem gert er ráð fyrir í öllum hæfniviðmiðum námskeiðsins. Ágallar eru nokkrir en ekki alvarlegir. 
Önnur einkunn:
6,0-7,0
 
Frammistaða nemandans er nokkuð góð og ber vott um þá þekkingu, skilning og hæfni sem gert er ráð fyrir í hæfniviðmiðum námskeiðsins, þó að hann uppfylli þau ekki öll jafn vel. Ágallar eru nokkrir og sumir alvarlegir. 
Þriðja einkunn:
5,0-5,5 
Frammistaða nemandans er viðunandi og sýnir lágmarksþekkingu á grundvallaratriðum sem gert er ráð fyrir í hæfniviðmiðum námskeiðsins, en uppfyllir fæst þeirra vel. Talsvert er um alvarlega ágalla. 
Falleinkunn:
0-4,5 
Frammistaða nemandans er ekki viðunandi og ber ekki vott um lágmarksþekkingu á grundvallaratriðum námskeiðsins, enda uppfyllir hann ekki öll hæfniviðmið þess.
deila á facebook

Skil lokaritgerða vormisseris

Skil BA ritgerða: 10. maí.

Skil meistaraprófsritgerða: 4. maí.

Ritgerðum skal skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs.

Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs